Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands og fréttamaður á RÚV, segir Fréttin.is sem er á vegum Margrétar Friðriksdóttur og Viljinn.is á vegum Björns Inga Hrafnssonar séu ekki fjölmiðlar þrátt fyrir skráningu sem slíka á vef Fjölmiðlanefndar. Sigríður ræddi málið við Stundina í kjölfar þess að Fréttin.is fékk skráningu hjá Fjölmiðlanefnd.
Sigríður segir að miðill Margrétar líti út eins og „bloggsíða sem vill láta líta á sig sem fjölmiðil“.
„Eins og þarna, þetta er bloggsíða þar sem einhver er að koma áróðri á framfæri, að það sé ekki gert með því að villa á sér heimildir, að þykjast vera fjölmiðill þegar þú ert bara bloggsíða og það er bara ábyrgðarhluti,“ sagði hún við Stundina.
Sama eigi við um Viljann, en allir sem horfðu á upplýsingafundi Almannavarna með þríeykinu kannast við Björn Inga á Viljanum.
„Við höfum séð þetta á síðastliðnum 18 mánuðum að Björn Ingi titlar sig sem blaðamann á Viljanum en hann er ekkert annað en bloggari á sinni eigin bloggsíðu,“ sagði hún. „Hann hefur ekki verið að auka skilning fólks á því hvað felst í því að vera blaðamaður. Ég er ekki þar með að segja að hann ástundi óheiðarleg vinnubrögð. Ég er að halda því fram að miðillinn hans geti ekki talist áreiðanlegur fréttamiðill sem vinnur samkvæmt skilgreiningum ritstjórnar og þeim vinnubrögðum sem þar eru viðhöfð því þetta er bara einn maður sem heldur úti bloggsíðu, það getur aldrei verið ritstjórn.“