Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lét athyglisverð ummæli falla í beinni útsendingu samtakanna Út úr kófinu á dögunum.
Stundin vakti fyrst athygli á þessu.
Um var að ræða viðburð í gegnum streymi þar sem Sigríður ræddi meðal annars stöðu kórónuveirufaraldursins við þá Jón Ívar Einarsson, prófessor við Harvard-háskóla og Þorstein Siglaugsson hagfræðing, en þau standa að baki samtökunum Út úr kófinu. Þá var Martin Kulldroff, læknir og einn af höfundum Barrington-yfirlýsingarinnar, gestur í spjallinu en með henni er reynt að færa rök fyrir „hnitmiðuðum sóttvarnaraðgerðum fremur en almennum lokunum“ eins og Sigríður orðaði það í kynningu á Facebook-síðu sinni þann 13. nóvember síðastliðinn.
Í spjallinu var farið um víðan völl en í lok þess sátu þau Sigríður, Jón Ívar og Þorsteinn eftir þar sem þau gerðu fjarfundinn upp.
„Ég hef stundum nefnt það um prestana í þessu ástandi. Mér finnst vanta að þeir hafi stigið inn í þessa umræðu og rætt opinskátt um lífið og dauðann. Það kemur fólki rosalega á óvart að 90 ára gamall einstaklingur hafi dáið úr kvefi eða inflúensu. Nú er ég ekki læknir og ég spyr bara Jón: Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt?“
Jón svaraði því neitandi og bætti Sigríður við að faraldurinn hefði sýnt fram á takmörk mannlegs lífs. „Þetta eru hrá skilaboð, líkaminn ræður ekki við svona en hann hefur heldur ekki ráðið oft við inflúensu eða jafnvel bara kvef. Ef það kemur inflúensa eða erfitt kvef inn á svona deildir eins og Landakot, endar það ekki oft svona?,“ spurði Sigríður.
Jón sagði að örlög okkar flestra væru að deyja úr því sem kallað er lungnabólga. „Það er oft ekkert farið nánar út í það, eða athugað hvaða padda það var sem dró viðkomandi til dauða,“ sagði Jón og bætti við að það væri alls ekki það sama ef níræður einstaklingur deyr, einstaklingur sem á kannski örfáa mánuði eftir, í samanburði við einstakling á þrítugsaldri til dæmis.
„Það er ekki það sama. Það vantar kannski smá vakningu í því. Mér hefur fundist siðfræðingar vera hljóðir í þessu,“ bætti hann við.
Spjallið má sjá í fullri lengd hér að neðan en umræðan sem vísað er til hér að framan byrjar þegar skammt er eftir af myndbandinu.