Sigríður Andersen baunar á ferðalag Herra Hnetusmjörs: „Vildi loka landamærum Íslands með ofbeldi“

Sigríður Andersen, fyrrverandi ráðherra, setur stórt spurningamerki við ferðalag Herra Hnetusmjörs til Lundúna.

MBL greindi frá því að tón­list­armaður­inn Árni Páll Árna­son, best þekkt­ur sem Herra Hnetu­smjör, séu stadd­ur í Lund­ún­um um meðkær­ustu sinni, Söru Linn­eth Castañeda.

Munu þau hafa skellt sér í langþráð for­eldra­frí áður en annað barn þeirra kem­ur í heim­inn, settur dagur er í janúar.

Herra Hnetusmjör var einnig viðstadd­ur út­skrift­ar­at­höfn í Der­by hjá syst­ur sinni.

Sigríður segir á Twitter: „Altso… Er þetta maðurinn sem vildi loka landamærum Íslands með ofbeldi?,“ spyr hún og vísar til ummæla Herra Hnetusmjörs frá því fyrr í faraldrinum. Þá sagði hann: „Hversu oft þurfa íslenskir ríkisborgarar að loka sig af á meðan túristar þykjast fara í sóttkví? Hversu mörg afbrigði inn um landamærin til að við gefum skít í ríkisstjórnina? Við erum greinilega ekki í þessu saman.“ Þá vildi hann láta teppa Reykjanesbrautina til að halda veirunni úti.

Sigríður segir í dag:

„Fer núna úr eldrauðu Íslandi og hittir kannski fólk frá löndum þar sem nýgengi smita er mjög lágt.“