„Mér er brugðið yfir þeim fúkyrðaflaumi sem hefur gengið yfir Einar Þorsteinsson, kollega minn í Kastljósi, vegna viðtals hans við Pál Matthíasson, forstjóra Landspítalans, á mánudaginn,“ segir fréttakonan og rithöfundurinn Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Sigríður skrifar færslu á Facebook þar sem hún tjáir sig meðal annars um þetta mál og bók sína Eyland sem kom út árið 2016.
„Undanfarna mánuði hefur fólk stundum komið að máli við mig á förnum vegi, úti í búð, á veitingahúsum, og spurt hvort ég búi yfir einhverri spádómsgáfu, að hafa séð einangrunina vegna Covid-faraldursins fyrir. Svarið er nei, það gerði ég ekki, sem betur fer,“ segir Sigríður sem kveðst hafa heyrt ýmsar túlkanir á bókinni; að hún sé um uppgang fasisma eða útlendingahatur.
„En ég skrifaði hana fyrst og fremst um blaðamennsku. Um það sem kemur fyrir þjóðfélög þegar krafan um samstöðu verður svo fyrirferðarmikil að blaða- og fréttamenn hætta að þora að spyrja erfiðra og leiðinlegra spurninga,“ segir Sigríður sem vindur sér svo að gagnrýninni sem Einar, kollegi hennar, fékk yfir sig eftir viðtalið við Pál á mánudagskvöld.
„Við erum aldrei hafin yfir gagnrýni, en margt af því sem sett hefur verið fram um viðtalið, meðal annars hér á Facebook, getur ekki flokkast sem annað en persónulegar árásir og smánun á hendur vönduðum og skeleggum fréttamanni, sem hefur ekki unnið annað til saka en að vinna vinnuna sína. Einar er ekki eini frétta- eða blaðamaðurinn sem hefur þurft að þola rætnar, persónulegar árásir fyrir störf sín, oft frá fólki sem ætti að vita betur en að fara í manninn og skjóta sendiboðann,“ segir hún.
Sigríður hefur þá tilfinningu að harkan í þessari ómálefnalegu umræðu hafi aukist og bergmálshellarnir dýpkað að undanförnu.
„Ég óttast að það hafi á endanum þau áhrif að fæla hæfileikafólk frá blaðamennsku, og hræði starfandi blaðamenn frá því að fjalla á gagnrýninn hátt um stöðu umdeildra mála. Ég bý ekki yfir neinni spádómsgáfu, en ég veit hvað kemur fyrir þjóðfélög þegar blaðamenn hætta að þora að spyrja erfiðra spurninga. Til þess þarf enga spádómsgáfu, sagan hefur kennt okkur það, aftur og aftur.“
Árið 2016 skrifaði ég bók sem heitir Eyland. Ég skrifaði hana aðallega fyrir sjálfa mig og ætlaði ekkert endilega að...
Posted by Sigríður Hagalín Björnsdóttir on Miðvikudagur, 28. október 2020