Sigríður Andersen, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, skýtur föstum skotum á fréttastofu RÚV í færslu á Facebook og má segja að henni hafi blöskrað yfir spurningunum sem Jón Gunnarsson innanríkisráðherra fékk um val sitt á Brynjari Níelssyni, fyrrverandi þingmanni, sem aðstoðarmanni.
Bjarni Benediktsson var spurður út í þetta í fréttum RÚV í dag og gerði lítið úr þeim athugasemdum sem komið hafa fram. Sagði hann enga málefnalega gagnrýni hafa komið fram á skipunina.
„Fólki er frjálst að hafa skoðun á einstaka ráðherrum en ég sé bara engan málefnalegan grundvöll fyrir þeirri gagnrýni sem hefur komið fram,“ sagði Bjarni.
Sigríður tekur í sama streng.
„Fréttastofa RÚV getur enn komið á óvart. Í viðtali við fjármálaráðherra eftir ríkisstjórnarfund í dag var drjúgum hluta varið í að ræða skipan Jóns Gunnarssonar í ríkisstjórn og aðstoðarmanns hans,“ segir Sigríður á Facebook.
Vitnar hún svo í viðtal:
„Fréttamaður RÚV við BB: „En nú er Jón Gunnarsson á ja, tja, besta aldri og hann hefur ráðið Brynjar... Þú telur engum vandkvæðum bundið að þeir sinni þessum málaflokki?“ Á besta aldri! Já svei'attan.
Og fréttamaðurinn bætti um betur og fullyrti að: „þetta sé það sem fólk sé að velta fyrir sér í samfélaginu“. Já er það nú?“
Sigríður bætir við:
„Og ef menn halda að fréttastofa RÚV hafi látið þessa dellu nægja í dag þá má benda á að í þessum skrifuðum orðum situr nefndur Jón Gunnarsson í Kastljósi og er krafinn svara um val á aðstoðarmanni sínum. Aðstoðarmanni! Fyrsta mál á dagskrá viðtals við nýjan ráðherra!,“ segir hún ósátt.
„Það væri ekki hægt að selja inn á þessa þvælu RÚV.“
Margir taka undir með henni, þar á meðal Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi ráðherra.
Sigríður bætti svo við:
„Ha ha - og eftir að drjúgum hluta Kastljóssviðtalsins var varið í myndbirtingar af Brynjari og ummælum hans og oftúlkununum á þeim lauk þessu Kastljósviðtali lauk með: „Já útlendingamálin, við verðum að ræða þau síðar.““