Sig­ný birtir ræðuna sem hún fékk ekki að flytja á ASÍ þingi: „Upp­lýsir bara um tak­markaðan skilning þeirra á sam­fé­laginu“

Sig­ný Jóhannes­dóttir, for­maður í Stéttar­fé­lagi Vestur­lands, sem bæði á aðild að SGS og LÍV og full­trúi á 45. þingi ASÍ skrifa­r um raunir sínar af þinginu á Vísir í dag.

„Þegar fór að styttast í 45. þing ASÍ og ljóst var að á­kveðnir aðilar úr hópi for­ystu­fólks voru farnir að til­kynna um fram­boð, sem að mínu mati hefði þýtt fjand­sam­lega yfir­töku sam­bandsins, settist ég niður og skrifaði ræðu til að flytja undir liðnum önnur mál í þing­lok. Ég er ýmsu vön í fé­lags­starfi en sú at­burða­rás sem upp­hófst á þinginu var með þeim ó­líkindum að engum reifara­höfundi hefði dottið í hug að setja þetta saman,“ skrifar Sig­ný en grein hennar heitir ræðan sem rauk út á haf.

Sig­ný á­kvað að birta ræðuna sína í heild sinni.

„Eftir nokkra um­hugsun á­kvað ég að birta þessa meintu ræðu sem kafla í reifaranum. Ég vona inni­lega að það komi aldrei til að ræðan verði flutt:

Á­stæða þess að ég tek hér til máls undir liðnum önnur mál, er sú að nú hafa þau tíðindi gerst að kosið hefur verið til for­ystu í ASÍ hópur fólks sem ég hef lítinn á­huga að starfa með. Ég vil því nota þetta tæki­færi til að til­kynna að ég mun ekki gefa kost á mér til frekari trúnaðar­starfa fyrir ASÍ. Ég hef upp á síð­kastið starfað í Skipu­lags- og starfs­hátta­nefnd, sem og í laga­nefnd og biðst hér með undan frekari setu þar. Eins hef ég verið full­trúi ASÍ í nefnd um endur­skoðun á 12. kafla um veikinda­rétt í kjara­samningum við ríki og sveitar­fé­lög. Einnig hef ég verið full­trúi sam­bandsins í Starfs­fræðslu­ráði fé­lags, heil­brigðis- og upp­eldis­greina. Ég óska hér með eftir því að vera leyst undan þessum störfum,“ skrifar Sig­ný.

Á­stæða þess að ég, sem hef viljað af ein­lægni taka að mér hin fjöl­breyttustu störf fyrir verka­fólk á þessu landi, treysti mér nú ekki til að vinna í nafni ASÍ, er sú að þetta nýja for­ystu­fólk er þannig inn­stillt að ég tel mig ekki eiga nokkra sam­leið með þeim eða að ég geti varið eða staðið með skoðunum þeirra.

Ég hef átt langt og gott sam­starf með verka­lýðs­hreyfingunni fram til þessa. Ég tel að ég hafi tekið þátt í því að breyta sam­fé­laginu til hins betra t.d. með til­urð fæðingar­or­lofs fyrir báða for­eldra, stofnun fræðslu­sjóða verka­fólks, stofnun fræðslu­mið­stöðvar at­vinnu­lífsins og stofnun hins opin­bera Fræðslu­sjóðs. Stofnun Virk starf­sendu­hæfingar­sjóðs, stofnun Bjargs í­búða­fé­lags árið 2016 á 100 ára af­mæli ASÍ..

„Einnig hef ég komið að því að semja um jöfnun mót­fram­laga í líf­eyris­sjóði á al­mennum og opin­berum markaði, semja um lengingu á fæðingar­or­lofi. Semja um bætta réttar­stöðu verka­fólks á leigu­markaði, hækkun á greiðslum úr á­byrgða­sjóði launa o. fl. og fl. upp­talningin er alls ekki tæmandi.“

Ég var og er líka stuðnings­maður SALEK, sem þetta fólk skilur ekki og hefur gert að einu alls­herjar skammar­yrði og upp­lýsir bara um tak­markaðan skilning þeirra á sam­fé­laginu.

Flest af því sem ég hef hér talið upp var unnið í tíð Gylfa Arn­björns­sonar sem for­seta ASÍ. Nú­verandi for­ysta telur sér það til tekna að hafa hrakið hann úr starfi. Þau studdu fyrir fjórum árum Drífu Snæ­dal í for­ystu­hlut­verk ASÍ og af­rekuðu það nú síð­sumars að hrekja hana úr for­ystunni, fyrstu konuna á for­seta­stóli. Ég var ekki stuðnings­maður Drífu þegar hún bauð sig fram en tel að hún hafi vaxið­í starfi með hverju árinu sem leið. Megi þetta of­beldis­fólk hafa skömm fyrir fram­gang sinn sem leiddi til brott­hvarfs hennar.

Góðir fundar­menn

Nýja for­ystan, telur að lýð­ræðið felist í því að meiri­hlutinn kúgi minni­hlutann. Skoðanir þeirra særstu séu alltaf réttar og engu máli skipti þær skoðanir, sem koma frá öðrum af því að þeirra fé­lög séu svo lítil, smælingjunum megi bara bjóðast að vera sam­mála stór­veldunum, eigi að klappa fyrir for­yngjunum og falla svo fram og til­biðja þá. Þannig um­hverfi er í mínum huga ekki eftir­sóknar­vert og endar bara illa. Skyn­semi á ekkert skylt við stærð aðildar­fé­laganna.

Ég vil að lokum þakka öllu því frá­bæra fólki sem ég hef haft tæki­færi til að starfa með á liðnum ára­tugum, bæði ein­stökum for­ystu­mönnum fé­laga og ekki síður starfs­fólki ASÍ.

Ég skora hér með á allt heiðar­legt og vel­viljað fólk að bíða af sér storminn, sem er í vændum. Verum minnug þess að öll él birtir upp um síðir.

„Stormurinn sem kom upp að suður­ströndinni þennan mánu­dags­morgun 10. októ­ber 2022, hring­s­lólaði yfir fundar­sölum á Hótel Hilton fram á þriðju­dag 11. okt. þá strunsaði storm­sveipurinn út, dróg með sér nokkurt fylgdar­lið og skildi þing­heim eftir í for­undran. Það ætla ég að vona að þetta ó­veður komi aldrei aftur,“ skrifar Sig­ný að lokum.