Sigmundur upplýsir um kúgunarbréf Hlínar og Malín sem sent var á leikskóla dóttur hans: „Auðvitað sló mann ekki vel“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, var sleginn þegar hann las fjárkúgunarbréf Hlínar Einarsdóttur og Malín Brand árið 2015. Sigmundur upplýsti í nýjum hlaðvarpsþætti, Eftirmálum, sem fyrrverandi fréttakonurnar Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Yaghi halda út á Vísi, að í bréfinu hafi verið hótun í garð dóttur hans sem þá var þriggja ára.

Tekið var fram í fjárkúgunarbréfinu að Malín og Hlín vissu hvar dóttir hans væri í leikskóla, þá hafi eitt bréfið hefði borist í leikskólann hennar.

„Einnig og það sem skipti kannski miklu meira máli í þessu öllu var hótun gagnvart barninu. Meira að segja hafði komið hótunarbréf á leikskóla barnsins sem ég sagði ekkert frá á þessum tíma en auðvitað sló mann ekki vel,“ sagði hann.

Ekkert var vitað hver stæði að baki bréfunum fyrr en systurnar voru handteknar. „Það þarf að sitja eftir í svona máli að þetta eigi ekki að líðast.“

Hlín Einarsdóttir og Malín Brand fengu tólf mánaða dóma, þar af níu mánuði skilorðsbundna. Þær afplánuðu aldrei.