Sigmundur Davíð Gunnlaugsson deildi því með þingheimi í dag að hann haf séð eiturlyf, hvað þá neytt þeirra. Ástæða þessarar sérstæðu upplýsingagjafar formanns Miðflokksins var umræða um frumvarp heilbrigðisráðherra um afnám refsinga við vörslu vímuefna. Sigmundur tók þátt í umræðunni og lýsti miklum efasemdum um frumvarpið en með því er lagt til að hætt verði að beita refsingum fyrir vörslu neysluskammta þeirra vímuefna sem ólögleg eru, en sala þeirra og innflutningur verði áfram ólögleg.
„Við erum nú reiðubúinn til að ganga gegn því sem teljast almenn mannréttindi vegna þess að það er talið nauðsynlegt í baráttu við faraldur en á sama tíma leggur ríkisstjórnin nú til að annar faraldur og ekki síður hættulegur verði sérstaklega lögleiddur, leggur til lögleiðingu fíkniefna,“ sagði Sigmundur í ræðu sinni.
Hann fjallaði um fælingarmátt refsinga og sagði þá staðreynd að eitthvað sé ólöglegt meðal ástæðna þess að fólk forðist það.
„Ekki hvað síst í tilviki fíkniefnaneyslu þar sem útskýrt er fyrir börnum og fullorðnum líka að það sé ólöglegt að neyta fíkniefna,“ sagði Sigmundur í ræðunni og bætti við máli sínu til stuðnings:
„Ég hef aldrei séð eiturlyf, herra forseti, eða þeirrar neytt vegna þess að þau hafa verið ólögleg og menn hafa ekki verið að flíka þeim.“
Hann sagði að nú megi búast við því að fólk mæti óhrætt með sína neysluskammta í bekkjarpartíin og önnur samkvæmi „þar sem freistingin verður væntanlega mikil fyrir aðra að prófa, fólk sem ella hefðu ekki komist í kynni við þessi eiturlyf.“
Þessu mótmælti Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata harðlega.
„Ég ætla að viðurkenna það hér að ég hef séð vímuefni og ég hef verið viðstaddur þar sem fólk hefur farið sér að voða og verið vitni að því að fólk veigri sér þá við því að leita sér hjálpar af ótta við lögregluna,“ sagði Helgi Hrafn í andsvari við ræðu Sigmundar. Hann sagði persónulega reynslu gagnlega í samfélagslegri umræðu um málaflokkinn.
„Það er fullt af fólki í þessu samfélagi sem hefur meira vit á vímuefnamálum vegna persónulegrar reynslu heldur en háttvirtir þingmenn Miðflokksins sem tala eins og það sé göfugt að hafa ekkert vit á málaflokknum,“ sagði Helgi Hrafn.
En Sigmundur ræddi meira en persónulegt reynsluleysi í ræðu sinni. Hann furðaði sig til að mynda á því að Sjálfstæðismenn og Framsókn taki þátt í þessu tiltæki með heilbrigðisráðherranum. Sjálfstæðisflokkurinn hafi í eina tíð skilgreint sig sem flokk laga og reglu og Framsóknarflokkurinn hafi boðað fíkniefnalaust Ísland árið 2000.
„Munu þessir flokkar fallast á þetta furðuverk sem hér birtist okkur?“ spurði Sigmundur í ræðu sinni.