Sig­mundur: „Það skiptir veru­legu máli hvernig for­sætis­ráðu­neytið skil­greinir konur“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokksins og fyrr­verandi for­sætis­ráð­herra, skrifar í pistli sínum sem birtist í Morgun­blaðinu í gær um hörð við­brögð við spurningu hans til for­sætis­ráð­herra, en hann spurði: „Hvað þýðir orðið kona?“

Þar segir hann Twitter, „aðal­sam­fé­lags­miðil hinna gagn­rýnustu og hörunds­árustu,“ hafa logað enda vakti spurningin hörð við­brögð með á­sökunum um for­dóma og fá­visku.

„Til að skilja slík við­brögð við þess­ari ein­­földu spurn­ingu, þarf að þekkja til nýrr­ar harð­línu­­stefnu sem nú hef­ur verið flutt inn frá út­lönd­um,“ segir Sig­mundur.

Hann segir að víða er­lendis þyki sumum ó­við­eig­andi að tala um konur. „Þetta við­horf hef­ur verið keyrt á­fram af þeirri hörku, að starfs­­menn fyr­ir­­tækja og op­in­berra stofn­ana hafa fengið leið­bein­ing­ar eða verið sett­ir á inn­ræt­ing­ar­­nám­­skeið um að forðast beri að tala um kon­ur,“ segir Sig­mundur og bendir á að víða hafi verið hvatt til orða­notkunar á borð við „ein­staklingar sem hafa tíðir“ og „leg­hafar.“

Sig­mundur segist ekki hafa lagt fyrir­spurnina fram í hálf­kæringi. „Það skiptir veru­legu máli hvernig for­sætis­ráðu­neytið skil­greinir konur, því það hefur á­hrif á lög og fram­fylgd þeirra,“ segir hann.

Sig­mundur segir að það hljóti að vera hægt að ræða þessi mál „án þess að stjórn­völd komi sér hjá því að svara til um á­hrif­in og að þeir sem spyrja spurn­inga megi vænta per­­sónu­­legra á­rása eða full­yrðinga um að þeir megi ekki tjá sig um málið af því þeir til­­heyri ekki rétt­um hópi.“

Þá segir hann það vera frá­leitt að úti­loka að konur geti fæðst í líkama karls og öfugt, en það eigi að sýna öllum virðingu, ræða málin af skyn­semi og verja um leið konur, karla og börn fyrir skað­legum þrýstingi og öfgum.