Sig­mundur styður FÍFL: „Stjórn­mála­um­ræða á Ís­landi er á al­gjörum villi­götum“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður og for­maður Mið­flokksins, segir stjórn­mála­um­ræðu á Ís­landi vera á „al­gjörum villi­götum“ þessa daganna vegna um­ræðu um aug­lýsingu Fé­lags ís­lenskra fíkni­efna­lög­reglu­manna (FÍFL). Lögreglan hefur fengið hólfskeflu af gagnrýni yfir sig vegna auglýsingarinnar sem beindist gegn kannabisnotkun en nöfn fyrirtækja og samtaka voru meðal annars notuð í leyfisleysi.

„Stjórn­mála­um­ræða á Ís­landi er á al­gjörum villi­götum. Hvernig getum við verið komin á þann stað að ráðist sé á lög­regluna fyrir að vara við fíkni­efna­neyslu?,“ skrifar Sig­mundur á Face­book.

Hann fagnar jafn­framt því að komið var í veg fyrir að frum­varp heil­brigðis­ráð­herra um af­glæpa­væðingu fíkni­efna hér­lendis.

„Ég er feginn að okkur tókst að koma í veg fyrir frum­varp ríkis­stjórnarinnar/Pírata um lög­leiðingu fíkni­efna en það má greini­lega ekki slá slöku við,“ skrifar Sig­mundur Davíð enn fremur.