Sigmundur lék fræga Hollywoodstjörnu: „Engin verðlaun fyrir að giska á hvaða lag ég valdi“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokksins, hefur verið á ferð á flugi síðustu daga líkt og aðrir fram­bjóð­endur til Al­þingis.

Sig­mundur gerði sér lítið fyrir og kíkti við á Húsa­vík þar sem hann skellti sér í gervi Hollywoodstjörnu. Þá valdi hann óska­lag en vill ekki gefa upp hvaða lag það er.

„Stór­skemmti­legur dagur í yfir 20 stiga hita á Húsa­vík. Lærði raf­suðu af meistara, skoðaði frá­bæra fram­leiðslu hjá fyrir­tæki sem er leiðandi á heims­markaði (og notar réttu verk­færin), hitti eld­hressa eld­ri­borgara, fékk að kíkja á Euro­vision­safn sem verður rosa­lega flott þegar það opnar og fékk að leika frægan karakter úr Hollywoodmynd …og velja óska­lag (engin verð­laun fyrir að giska á hvaða lag ég valdi),“ skrifar Sig­mundur á face­book og birtir myndir af sér.