Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, vandar Degi B. Eggertssyni ekki kveðjurnar í stöðuuppfærslu á Facebook. Hann er ekki sáttur við fyrirhuguð áform Reykjavíkurborgar sem vill fækka bensínstöðvum í Reykjavík, „ásamt áformum um að byggja þar stórhýsi án samráðs við nágranna, að því er virðist,“ eins og Sigmundur orðar það.
Dagur tísti í gær um samning sem borgin hefur undirritað við þrjú stærstu olíufélög landsins um að fækka bensínstöðvum í borginni um þriðjung og fjallað var um málið á vef DV. Í stað bensínstöðva við Birkimel, í Álfheimum og við Ægissíðu koma íbúðir og við Hringbraut verður haldin samkeppni um skipulag Umferðarmiðstöðvar í stað bensínstöðvar sem þar er nú.
Í grænum fréttum er þetta helst: Borgarráð samþykkti í morgun samninga við þrjú stærstu olíufélögin um þriðjungs fækkun bensínstöðva í Reykjavík á næstu árum. Í staðinn koma íbúðir og hverfistengd þjónusta. Dælum fækkar um 33%. Sjá muninn á kortum. Þráður með myndum. #GrænaPlanið pic.twitter.com/uHCwFEG2no
— [email protected] (@Dagurb) June 24, 2021
„Meðal bensínstöðvanna er Essó í Skógarseli sem hefur lengi verið mikilvægur viðkomustaður í hverfinu og aldrei gert neinum mein. Ég vann þar í mörg ár á sumrin og með skóla (fyrst sem starfsmaður á plani og loks sem starfsmaður í verslun)“, skrifar Sigmundur.
Hann nefnir einnig bensínstöðina við Birkimel, sem hann segir að hafi gefið nemendum við Háskóla Íslands „smá séns á bílastæði í hátt í 30 ár.“
Þetta er að mati Sigmundar allt „liður í því að hrekja fjölskyldubílinn af götum borgarinnar.“