Sig­mundur Ernir: „Ó­lígarka­væðing ís­lensks sam­fé­lags er á fleygi­ferð“

Sig­mundur Ernir segir að það sé komið að ögur­stundu í auð­ræðinu á Ís­landi. „Það er komið að þeim tíma sem í­búar þessa lands verða að gera upp við sig hverjir raun­veru­lega ráða,“ segir hann í skoðana­grein sem birtist í Frétta­blaðinu í dag sem titluð er „Þeir sem ráða.

Hann segir valið standa á milli auðsins og al­þýðunnar. „Það er ekki flóknara en svo,“ segir hann.

Sig­mundur segir stærstu spurninguna í öll því mengi vera hvort lýð­ræðið virki á Ís­landi, eða hvort það sé búið að kippa því úr sam­bandi. „Fólk kjósi en fái svo allt aðra niður­stöðu en at­kvæða­kassarnir höfðu að geyma.“

„Það hyllir undir að þrjár fjöl­skyldu­út­gerðir eignist auð­æfin í sjónum,“ segir hann. „Það er með öðrum orðum búið að koma kvóta­eigninni í vasa valdra lands­manna sem geta gengið frá rekstri sinna fyrir­tækja með and­virði ó­veiddra fiska á banka­reikningnum sínum.“ segir bætir hann við.

Sig­mundur segir ó­lígarka­væðingu ís­lensks sam­fé­lags vera á fleygi­ferð.

„Ó­heyri­leg auð­söfnun ör­fárra eig­enda að svo­kallaðri þjóðar­auð­lind er ó­spart nýtt til að sölsa undir sig fyrir­tæki í sjávar­út­vegi á Ís­landi. Sú þróun hefur verið greini­leg á síðustu árum.“

Hann segir þetta vera komið til vegna þess að auð­söfnin hefur verið látin al­tölu­laust. „Lög­gjafar­sam­kundu lands­manna er fyrir­munað að breyta hér nokkru. Svo hefur verið – svo verður á­fram,“ segir hann.

Sig­mundur segir lítinn og alls­ráðandi minni­hluti stjórna á Ís­landi og að pólitíkin hafi hent honum öll yfir­ráð yfir sjávar­auð­lindinni í ís­lenskri efna­hags­lög­sögu.

„Niður­staðan er því þessi og hún er jafn ógn­væn­leg og hún er á­takan­lega sönn. Það ríkir auð­ræði á Ís­landi, ekki lýð­ræði. Einu skiptir hvaða stjórn­völd koma og fara,“ segir Sig­mundur.

Hann endar pistilinn á að segja: „Út­gerðin ræður.“