„Stjórnvöldum er óhætt að fara að vilja þjóðarinnar í heilbrigðismálum, eins og raunar í hvaða málaflokki sem er. Hver könnunin af annarri í þessum efnum, árum og áratugum saman, hefur sýnt sömu niðurstöðuna: Yfirgnæfandi meirihluti almennings vill opinbert heilbrigðiskerfi sem er vel rekið fyrir fólkið í landinu, óháð fjárhag þess og búsetu.“
Þannig hefst skoðanagrein Sigmundar Ernis Rúnarssonar, ritstjóra Fréttablaðsins, í helgarblaði þess í dag og ber hún yfirskriftina „Veikur spítali“.
Sigmundur Ernir segir þar að fólk vilji ekki að heilbrigðisþjónustan fari í manngreinarálit, „taki þá fram fyrir röðina sem eru efnameiri og frekari. Það vill mannúðlega þjónustu á þessu sviði sem byggir á jafnræði.“
Stjórnendur æðstu heilbrigðisstofnana landsins hafa að undanförnu rætt mikið um erfitt ástand í heilbrigðiskerfinu og vilja meira fjármagn og sértækar aðgerðir til að mæta álagi af völdum Covid-19. Sigmundur Ernir segir þetta eðlilega kröfu, þar sem Landspítalanum beri samkvæmt lögum að veita nauðsynlega hátækniþjónustu sama hvort farsótt geysi eða kreppa. Hann segir að gera verði þá kröfu til stjórnenda að þeir hugsi í lausnum.
„Í grunninn er Landspítalinn vel rekin ríkisstofnun. Afköst hans standast samanburð við vel rekna spítala á hinum Norðurlöndunum. En hann má ekki stjórnast af kreddum,“ skrifar Sigmundur Ernir að lokum.