Í Fréttavaktinni á Hringbraut í gærkvöldi ræddi stjórnandi þáttarins, Sigmundur Ernir Rúnarsson, við nafna sinn Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins. Ýmislegt hefur gengið á hjá Sigmundi og hans flokki frá þingkosningunum sem haldnar voru undir lok septembermánaðar síðastliðins.
Miðflokkurinn tapaði drjúgum hluta fylgis síns í kosningunum og einungis tveimur vikum síðar gekk einn af þremur þingmönnum flokksins, Birgir Þórarinsson, úr Miðflokknum og til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins.
Sigmundur Davíð var spurður út í flokkaskiptin í Fréttavaktinni í gærkvöldi: „Þetta kom náttúrulega gríðarlega á óvart. Þetta hefur aldrei gerst áður að þingmaður – strax eftir kosningar, áður en að þing hefur verið sett, áður en búið er að staðfesta kjörbréf – skipti um flokk. Og svo hefur hann gefið til kynna að þetta hafi staðið til síðan fyrir kosningar,“ segir Sigmundur um sinn fyrrverandi flokksbróður.
Flokkaskiptin svívirðileg
Aðspurður hvort hann myndi kalla flokkaskipti Birgis svik segir Sigmundur Davíð þetta: „Þetta eru náttúrulega svik við fólkið sem var að vinna fyrir hann, fyrir flokkinn. Menn líta oft framhjá því hvað þarf mikið til að vera með framboð. Þú þarft fullt af sjálfboðaliðum, sem margir hverjir leggja á sig gríðarlega vinnu, sumir taka sér jafnvel frí frá vinnu til að vinna fyrir flokkinn. Við vorum með fimm kosningaskrifstofur.“
Því næst er hann spurður hvort hann myndi jafnvel telja athæfi Birgis svívirðileg: „Gagnvart þeim sem að þú færð til að vinna fyrir þig á ákveðnum forsendum, þá er þetta það auðvitað. Tækifærismennska augljóslega, að því er virðist, miðað við skýringarnar – sem breytast reyndar mjög reglulega eftir því sem kemur í ljós að hinar fyrri hafi ekki staðist. En hvað um það, þetta virðist vera niðurstaðan þó það verði kannski skoðað hvort þetta hafi allt verið með felldu samkvæmt gildandi reglum. En við bara vinnum út frá þeirri stöðu sem kemur upp hverju sinni,“ segir Sigmundur Davíð.
Hann er ekki sáttur við viðbrögð þingmanna Sjálfstæðisflokksins við flokkaskiptum Birgis: „Það er mjög sérstakt að fylgjast með umræðum hjá sjálfstæðismönnum eftir þetta og svara þeir iðulega, þegar þeir eru spurðir hvernig hann passi í þingflokkinn: „Sjálfstæðisflokkurinn er breiður flokkur, alls konar fólk getur verið hérna. Bryndís Haraldsdóttir og Birgir Þórarinsson og alls konar fólk,““ segir Sigmundur Davíð.
Hraunar yfir Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn
Hann heldur áfram og veltir fyrir sér: „Um hvað snýst Sjálfstæðisflokkurinn? Eru þetta bara samtök áhugafólks um eigið þingsæti? Samtök áhugafólks um mögulegt ráðherrasæti? Frekar en einhverja stefnu? En Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að þróast í þessa átt og afsaka það með því að hann sé svo breiður að skoðanir skipti ekki máli.“
Honum þykir lítið til Sjálfstæðisflokksins koma um þessar mundir: „Mér finnst hann vera þróast yfir í það að vera innihaldslaus kerfisflokkur. Að því marki sem hann hefur innihald þá hefur það verið að færast mjög hratt til vinstri. Yfir í nýju vinstri-nýaldarpólitíkina sem ég kalla sem svo og fyrst og fremst bara það að langa að vera í ríkisstjórn til að vera í ríkisstjórn.“
Sömu sögu hefur Sigmundur Davíð að segja um sinn gamla flokk, Framsóknarflokkinn: „Fór náttúrulega mjög hart til vinstri í aðdraganda kosninganna eins og bent hefur verið á. Fengu meira að segja frambjóðendur frá Samfylkingu og öðrum vinstri flokkum á lista hjá sér og fóru mikið í slíkar áherslur. Tóku upp á alls konar brellum, það hefði komið mér á óvart á sínum tíma ef Framsóknarflokkurinn hefði haldið samkvæmi þar sem yfirlýst klámstjarna var fengin til að vera eldgleypir. Þetta var flokkur sem var vanari karlakórum og einhverjum slíkum atriðum,“ segir Sigmundur Davíð og er greinilega ekki allskostar hrifinn af þeirri stefnu sem Framsókn hefur tekið síðustu ár.
Hann er hvergi banginn eftir kosningarnar
Sigmundur var spurður út í fylgistap Miðflokksins og hvort það hefði hreinlega í för með sér að flokkurinn væri að deyja: „Nei. Hann er ekki að deyja. Það er ekkert skrítið að þú spyrjir, við fórum ekkert vel út úr þessum kosningum sem komu mjög á óvart fyrir okkur og reyndar marga aðra flokka. Úrslitin komu mér á óvart á ýmsan hátt,“ segir forsætisráðherrann fyrrverandi.
Hann heldur áfram og segir gott hljóð í flokksmönnum: „Ég hef upplifað það eftir kosningarnar og kannski sérstaklega núna síðustu daga, að stemningin í flokknum hefur ekki verið eins góð – hún hefur verið góð reyndar lengi – en ekki eins góð í langan tíma. Maður mætir í vöfflukaffi óforvarendis og það er bara troðfullt hús og gríðarleg stemning. Maður heyrir það á flokksfólki um allt land að menn líta bara á þetta sem nýtt upphaf. Nú gefist tækifæri til þess að laga það sem betur má fara og byggja upp. Þannig að það er tilhlökkunarefni,“ segir Sigmundur Davíð.
Þá segist hann ekki vera að hugsa sér til hreyfings: „Nei, alls ekki. Ég hef náttúrulega, frá því ég byrjaði í pólitík, alltaf velt fyrir mér hvað ég ætti að vera lengi í þessum bransa. En þörfin fyrir aðra nálgun í pólitíkinni heldur en það sem hinir flokkarnir bjóða upp á hefur aldrei verið jafn mikil eins og núna, þannig að svarið er: ég held áfram.“