Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, greinir sína gömlu félaga í Framsóknarflokknum í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í gær.
Þar gagnrýnir hann flokkinn fyrir ýmislegt og segir hann hafa að undanförnu hrakið frá sumt af sínu dyggasta fólki í sveitarstjórnum. Bæði vel liðið og reynslumikið fólk.
„Í þessu skyni hefur ýmsum aðferðum verið beitt sem allar virðast þó fyrst og fremst snúast um að nota hvaða leiðir sem dygðu til að ná fram vilja „flokkseigenda“. Skýringarnar hafa reynst ekki síður sérkennilegar en aðferðirnar. Fráfarandi forseti bæjarstjórnar í Árborg lýsti því að hann hefði fengið að heyra að „Ný“ Framsókn teldi hann ekki „söluvæna vöru“ og tími til kominn að skipta honum út fyrir „yngra og ferskara fólk“,“ segir Sigmundur Davíð í grein sinni og vísar í pistil Helga Sigurðar Haraldssonar, forseta bæjarstjórnar í Árborg, sem sagði sig úr flokknum á dögunum.
Leituðu að frægum í framboð
Sigmundur Davíð skýtur einnig á Framsóknarflokkinn fyrir óvæntan en þó sögulegan árangur í síðustu þingkosningum.
„Fyrir síðustu Alþingiskosningar náði Framsóknarflokkurinn óvæntum árangri eftir að auglýsingastofa fann upp slagorð sem hljómaði sérkennilega í fyrstu (með því að spyrja kjósendur hvort það væri ekki bara auðveldast að láta sig hafa það að kjósa Framsókn) en fangaði augljóslega tíðarandann.
Flokkurinn leitaði líka hátt og lágt að frægu fólki í framboð og kona sem hafði vakið athygli fyrir að skilgreina sig sem klámstjörnu var fengin á fund flokksins sem eldgleypir. Eftir árangurinn af þessu virðast höndlarar flokksins líta svo á að Framsóknarflokkurinn sé orðinn of svalur fyrir sjálfan sig. Fyrir vikið nálgast þeir hann eins og verslunarstjórar í tískuvöruverslun,“ segir hann.
Sigmundur heldur áfram:
„Eftir að „flokkseigendur“ endurheimtu yfirráð í flokknum á sínum tíma, með aðferðum sem ég hef lítið rætt opinberlega, og tóku næst til við að ýta út öllum sem þeir töldu geta orðið ógn við nýgripið vald sagði ég skilið við flokkinn. Sama dag veitti ég viðtal á Bylgjunni og fór yfir hvernig „viðskiptamódel“ flokksins yrði.“
U-beygja þegar í ríkisstjórn er komið
Sigmundur segist hafa farið yfir það að flokkurinn myndi snúa sér að því að leita að frægu fólki í framboð og ráða auglýsingastofur til að endurskapa hann fyrir hverjar kosningar.
„Markmiðið yrði bara að ná nægu fylgi til að skipta máli við stjórnarmyndun þar sem flokkurinn yrði til í hvað sem er með hverjum sem er gegn því að fá ráðherrastóla og geta útdeilt gæðum. Þessi aðferð fellur sérstaklega vel að ímyndar- eða umbúðastjórnmálum samtímans þar sem yfirlýst markmið og umbúðir skipta jafnan meira máli en innihald og raunveruleg áhrif.“
Hann segir að með þessu hafi flokkurinn lofað ýmsu fyrir kosningar, til þess eins að taka U-beygju um leið og hann komst aftur í ríkisstjórn.
„Vegna forsögunnar og vegna þess að í Framsóknarflokknum hefur starfað mjög margt gott fólk hef ég oft eftirlátið öðrum gagnrýni á flokkinn og vonast til að hann yrði aftur prinsippflokkur. Meiri gagnrýni hefur verið beint að Sjálfstæðisflokknum og Vg, sem einnig hafa mjög margt gott fólk innanborðs, og þá einkum fyrir að hverfa frá bestu prinsippum þessara flokka. En er ekki bara best að taka Nýju Framsókn úr umbúðunum?“