Sig­mundur Davíð segir það skyldu Ís­lendinga að sækja gas á Dreka­svæðið: „Staðan í Evrópu svaka­leg“

Sig­mundur sem tók virkan þátt í um­ræðunni um þriðja orku­pakkann og boðaður sem gestur í Reykja­vík síð­degis á Bylgjunni í vikunni til að ræða stöðuna á raf­orku­markaði í Evrópu.

Hann var meðal annars spurður hvernig honum líst á stöðuna á orku­málum í Evrópu í dag?

„Þetta er svaka­lega staða þegar eitt mesta iðn­veldi heims, Þýska­land, horfir fram á það núna að fara í raf­orku­skömmtun. Verið að bjóða fólki að koma söfn eða fé­lags­mið­stöðvar til að hlýja sér. Slökkva á heilu borgunum að nætur­lagi. Þetta er ekki bara Þýska­land auð­vitað. Þetta er öll Evrópa. Í Bret­landi hefur orku­verð hækkað jafnt og þétt. Þar eru þeir með há­marks­verð á hvað má inn­heimta af fólki og þeir hafa marg­faldað það núna,“ segir Sig­mundur.

„Og í Noregi, sem er mikill orku­fram­leiðandi, þar hefur orku­verð sums staðar tí­faldast á skömmum tíma. Þetta er svaka­legt á­stand. Þetta mun þrýsta á frekari orku­pakka þeir eru að klára fjórða og svo munu þeir koma með fimmta,“ segir Sig­mundur.

Hann segist ekki vita hve­nær ríkis­stjórnin mun treysta sér til að koma með fjórða orku­pakkann en segir að það er örugg­lega byrjað að þrýsta á það.

Sig­mundur segir full­trúa Evrópu­sam­bandsins hafa í­trekað verið að þrýsta á þetta.

Í við­talinu kom til tals frétt Frétta­blaðsins um að Svíar væru að kaupa orku af norður­hluta Noregs og selja hana mun dýrari til Norð­manna í suður­hluta landsins.

Sig­mundur segir þetta á­minningu fyrir Ís­lendinga um mikil­vægi þess að halda for­ræði yfir okkar orku­málum. „Það voru mikil mis­tök að sam­þykkja þriðja orku­pakkann sem gengur út á fyrst út á að gera Evrópu að einum orku­markaði undir stjórn ESB og um leið að brjóta upp ríkis­fyrir­tæki í orku­fram­leiðslu“

„Þetta á­stand núna sýnir mikil­vægir þess að vega með öflugan opin­beran rekstur í orku­málum. Þar sem við getum ein­beitt okkur að fram­leiða nóg af um­hverfis­vænni orku en getum tekið til­lit til þess hvernig hún er nýtt,“ segir Sig­mundur.

Hann segir það skyldu Ís­lendinga að fara nýta aftur orku­auð­lindir á Dreka­svæðinu. „Sem yrðu væntan­lega miðað við rann­sóknir náttúrugras. Sem er eftir­sótt og mikil­væg orka núna og mun eftir­spurnin ó­hjá­kvæmi­lega aukast.“

Hann segir að eftir­spurninni verður ekki mætt með því að reisa vind­myllur.

Hægt er að hlusta á við­talið við Sig­mund hér.