Sig­mundur Davíð: RÚV ætti að fram­leiða raun­veru­leika­þætti um Brynjar Níels­son

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokksins, varpar ansi skemmti­legri hug­mynd fram á Face­book-síðu sinni. Þar leggur hann til að Ríkis­út­varpið fram­leiði raun­veru­leika­þætti um Brynjar Níels­son, þing­mann Sjálf­stæðis­flokksins.

„Allir yrðu glaðir. Sumir fengju á­nægjuna af því að skrifa hneykslunar­tíst viku­lega.

Aðrir myndu fá að njóta skemmti­efnis á rúv eins og í þá gömlu góðu. Allir gætu borgað nef­skattinn með meiri gleði,“ segir Sig­mundur sem kveðst hafa fengið hug­myndina eftir að hafa skrifað pistil um ybbana svo­kölluðu – rétt­trúnaðar­fólkið eða há­væra minni­hlutann eins og hann er stundum kallaður.

Sig­mundur Davíð lætur ekki staðar numið við þessa hug­mynd um Brynjar og leggur fleira til.

„Ég gæti svo verið með spjall­þætti á föstu­dags­kvöldum til að auka hlut­lægni (engin þrá­hyggja gagn­vart ein­stak­lingum eða flokkum), draga úr nei­kvæðni og auka á­horf,“ segir Sig­mundur sem hefur reynslu úr sjón­varpinu. Eins og margir vita starfaði hann á RÚV í mörg ár áður en hann haslaði sér völl í pólitík.

Eftir síðurstu færslu fékk ég hugmynd. Ríkissjónvarpið ætti að framleiða raunveruleikaþætti um Brynjar Níelsson....

Posted by Sigmundur Davíð Gunnlaugsson on Þriðjudagur, 13. október 2020