Sigmundur Davíð ósáttur: „Til marks um galna nálgun stjórnvalda“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir ekki fara á milli mála hvaða sviðsmynd stjórnvöldum hugnist best í nýrri stefnu hennar fyrir loftslagsráðstefnuna COP26 sem nú stendur yfir.

Þar eru dregnar upp fjórar sviðsmyndir og er það að mati hans sviðsmynd D sem stjórnvöld vilji að verði að veruleika. Þetta segir Sigmundur Davíð á Facebook.

„Sviðsmynd D. Þar hefur öllum álverum verið lokað, neysla landsmanna hefur minnkað [lífsgæði], dregið hefur úr eftirspurn eftir ferðalögum. Innanlands ferðast flestir með almenningssamgöngum.
Hagvöxtur og fólksfjölgun eru tiltölulega lítil. Fólk borðar fyrst og fremst jurtafæði og því hefur landbúnaður færst frá dýraeldi. Fyrir vikið hefur sauðfé og nautgripum fækkað verulega (þeir sem eftir eru éta þang).

Þetta er til marks um galna nálgun stjórnvalda í umhverfisvænasta landi heims. Helsta framlag okkar til loftslagsmála er að nýta hreina innlenda orku til að framleiða meira, ekki minna, og styðja við hinn umhverfisvæna íslenska landbúnað.“