Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, gerir stólpagrín að ríkisstjórninni og ákvörðun hennar um að leggja niður Bankasýsluna í Facebook status sem slegið hefur í gegn.
„Ríkisstjórnin viðurkennir að hún hafi gert mistök við einkavæðingu Íslandsbanka en gerir það með því að leggja niður Bankasýsluna,“ skrifar Sigmundur í færslu sem að meira að segja þingmenn Samfylkingarinnar eins og Jóhann Páll Jóhannsson hafa sett „like“ við.
„Þau hafa líklega leitað að lausn í páskaeggi og fengið málsháttinn „árinni kennir illur ræðari.“