Sig­mundur Davíð fær á baukinn: „Boðar ó­geð­felldustu hug­mynda­fræði sem ég get hugsað mér“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokksins, hefur verið gagn­rýndur tölu­vert á sam­fé­lags­miðlum eftir ræðu sína á Al­þingi í gær­kvöldi.

Sig­mundur vísaði meðal annars til frum­varpa sem Katrín Jakobs­dóttir for­sætis­ráð­herra lagði fram í ríkis­stjórn í vikunni, en mark­mið þeirra er að tryggja rétt fólks með kyn­hlut­lausa skráningu og trans fólks auk barna sem fæðast með ó­dæmi­gerð kyn­ein­kenni.

„Í fyrsta lagi er um að ræða frum­varp um breytt aldursvið­mið til að breyta opin­berri skráningu kyns, og sam­hliða nafni. Þar er lagt til að miða við 15 ára aldur í stað 18 ára. Í öðru lagi er frum­varp sem tryggir rétt barna, sem fæðast með ó­dæmi­gerð kyn­ein­kenni, gegn ó­nauð­syn­legum skurð­að­gerðum og þannig er staðið vörð um líkam­lega frið­helgi þeirra. Í þriðja lagi er lagt fram frum­varp til laga um breytingar á ýmsum lögum til að tryggja laga­leg réttindi fólks með kyn­hlut­lausa skráningu og trans fólks,“ eins og segir á vef stjórnar­ráðsins þar sem fjallað var um frum­vörpin.

Í ræðu sinni sagði Sig­mundur að frum­varp um réttindi inter­sex barna væri „að­för að fram­förum og vísindum“ eins og hann orðaði það og sagði að um væri að ræða lík­lega „ó­hugnan­legasta þing­mál“ sem hann muni eftir í seinni tíð.

„Þetta er að­­för að fram­­förum og vísindum. Þetta er að­­för að frelsi for­eldra, þetta er að­för að frelsi heil­brigðis­­starfs­­fólks og þetta er að­­för að réttindum barna,“ sagði hann meðal annars.

Um­mæli Sig­mundar vöktu tals­verða at­hygli enda málið verið stór hluti af hags­muna­bar­áttu inter­sex fólks í gegnum tíðina.

Sól­ey Tómas­dóttir, fyrr­verandi borgar­full­trúi VG, sagði til dæmis á Twitter-síðu sinni:

„Ég vissi ekki að það væri hægt að vera jafn inni­lega ó­sam­mála hverju einasta auka­tekna orði sem vellur upp úr einum manni. Sig­mundur Davíð boðar ó­geð­felldustu hug­mynda­fræði sem ég get hugsað mér.“

Ellen Calmon, fyrr­verandi for­maður Ör­yrkja­banda­lagsins og for­maður Sam­fylkingar­fé­lagsins í Reykja­vík, segir á Twitter: „Hélt þetta væri ekki hægt! Sig­mundur Davíð er að toppa sig. Lag­færa skal og lækna fæðingar­galla eins og ó­dæmi­gerð kyn­ein­kenni. Ef það má ekki þá er það að­för að frelsi for­eldra. Hvað með sjálfs­á­kvörðunar­rétt barnsins!“

Hrafn Jóns­son, pistla­höfundur og kvik­mynda­gerðar­maður, segir: „Sig­mundur Davíð er bara eitt­hvað random pílu­spjald af vondum skoðunum sem róterast eftir því hvað er heitast í ein­hverjum glötuðum sub­kúltúr hverju sinni. Það er engin al­vöru sann­færing á bak við neitt. Gerir hann samt ekkert minna hættu­legan - mögu­lega enn hættu­legri.“

Ei­ríkur Rögn­valds­son, fyrr­verandi prófessor í ís­lensku við Há­skóla Ís­lands, segir á Face­book að Sig­mundur Davíð sé lýð­skrumari og mál­flutningur hans fyrir­lit­legur. „Þarna er um að ræða mikil­vægt réttinda­mál og grát­bros­legt að for­maður flokks þar sem stuðnings­menn Trumps eru næstum helmingur kjós­enda skuli flagga fram­förum og vísindum.“

Þá segir Hall­dór Auðar Svans­son, fyrr­verandi borgar­full­trúi Pírata, á Twitter að svo virðist sem Sig­mundur sé að reyna að taka í­halds­fylgi af Sjálf­stæðis­flokknum. „En ég held að þetta rugl nái ekki einu sinni inn hjá þeim mark­hópi. Það er nefni­lega munur á í­haldi og aftur­haldi, þetta kemur bara út sem á­gætis aug­lýsing fyrir því að stjórnin er alveg að gera sumt gott.“