Sigmundur Davíð birtir frétt úr framtíðinni: „Manninum sleppt með fíkniefnin en pokarnir sendir til rannsóknar“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fer háðsorðum um plastpokabannið sem tók gildi nú um áramótin. Í færslu á Facebook setur Sigmundur Davíð það í samhengi við afglæpavæðingu fíkniefna sem er á málaskrá ríkisstjórnarinnar.

Til að undirstrika mál sitt skrifar hann stutt leikrit, eða frétt, en hann var sjálfur fréttamaður á árum áður, sem gerast á í náinni framtíð:

„Maður var handtekinn í Leifsstöð í dag með talsvert magn fíkniefna í plastpokum sem hann hafði falið í kassa utan af Legókubbum.

Við yfirheyrslu kvaðst maðurinn hafa hent Legókubbunum.

Í samstarfi við hollensku lögregluna er nú unnið að því að hafa upp á kubbunum en þeir eru að mestu framleiddir úr plastefninu ABS (acrylonitrile butadiene styrene).

Að lokinni yfirheyrslu var manninum sleppt með fíkniefnin en pokarnir sendir til rannsóknar hjá rannsóknardeild umhverfislögreglunnar.”