Sigmundur Davíð áhyggjufullur: Ríkisstjórnin búin að setja rauðan hring um Ísland

„Mál­efni föru­fólks, flótta­manna og annarra sem ferðast um lang­an veg vegna vænt­inga um betra líf, eru í al­gjörri óreiðu á Íslandi,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Sigmundur viðrar þar áhyggjur sínar af málefnum flóttamanna hér á landi.

„Þetta hef ég nefnt alloft áður og oft fengið bágt fyr­ir. Oft hef­ur verið svarað með út­úr­snún­ing­um og sleggju­dóm­um án tengsla við raun­veru­leik­ann. En nú hef­ur raun­veru­leik­inn hlaupið sýnd­ar­mennsk­una uppi eins og jafn­an ger­ist fyrr eða síðar.“

Sigmundur rifjar upp að nokkur ár séu liðin síðan þing­menn Miðflokks­ins tóku að benda á að fjöldi hæl­is­leit­enda á Íslandi væri hlut­falls­lega orðinn marg­falt meiri en í öðrum Norður­landa­ríkj­um.

„Á sín­um tíma bent­um við á að hann væri orðinn sex­falt meiri en í Dan­mörku og Nor­egi og rúm­lega tvö­falt meiri en í Svíþjóð sem er þekkt fyr­ir opna stefnu í mála­flokkn­um.“

Sigmundur segir að bent hafi verið á ástæðurnar; Nor­eg­ur og sér­stak­lega Dan­mörk hefðu inn­leitt stefnu sem ætlað var að tak­ast á við vand­ann út frá staðreynd­um. „Þannig yrði þess­um lönd­um gert kleift að gera sem mest gagn fyr­ir þá sem eru í mestri neyð. – Frem­ur en að vera áfangastaður þeirra glæpa­gengja sem hneppa fólk í ánauð og senda það í hættu­för með því að selja vænt­ing­ar um bætt lífs­kjör.“

Sigmundur segir að Ísland hafi farið í þveröfuga átt.

„Rík­is­stjórn­in aug­lýsti í raun Ísland sem áfangastað með regl­un­um sem hún inn­leiddi og þeim skila­boðum sem hún sendi frá sér. Það gekk í ber­högg við stefnu danskra stjórn­valda. For­sæt­is­ráðherr­ann, Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, lýsti því yfir að mark­miðið væri að eng­inn kæmi til lands­ins til að sækja þar um hæli. „Dan­mörk má ekki vera sölu­vara glæpa­gengja,“ sagði Mette. Hún og dansk­ir Jafnaðar­menn hafa metið stöðuna út frá staðreynd­um. Mark­miðið er ekki að loka land­inu fyr­ir fólki í neyð held­ur að nálg­ast þessi stóru og erfiðu mál á þann hátt að hægt sé að gera sem mest gagn. Hjálpa sem flest­um þeirra sem þurfa mest á hjálp að halda og gera það sem best.“

Sigmundur segir að hér á landi séu þessu öfugt farið.

„Stjórn­völd senda frá sér skila­boð sem virka sem aug­lýs­inga­efni fyr­ir þá sem skipu­leggja fólks­flutn­inga. Slík skila­boð dreifast hratt á sam­fé­lags­miðlum eða á götu­horn­um þar sem dreifi­bréf­um er út­deilt. Ég er minn­ug­ur þess þegar finnsk­ur ráðherra sagði mér að stjórn­völd þar í landi hefðu orðið felmtri sleg­in þegar 50-60.000 manns komu skyndi­lega frá til­teknu landi til að sækja um hæli. Ástæðan reynd­ist sú að reglu­breyt­ing, sem finnska þingið taldi smá­vægi­lega, hefði sett Finn­land á kortið sem væn­leg­an áfangastað. Straumi, sem áður var beint til Belg­íu, var snúið til Finn­lands.“

Sigmundur segir að ríkisstjórn Íslands hafi sett stóran rauðan hring um Ísland sem áfangastað með þeim reglum sem hér gilda og þeim skilaboðum sem hún hefur sent frá sér.

„Þetta er löngu orðið aug­ljóst en nýj­asta út­spilið felst í svo­kölluðum lög­um um sam­ræmda mót­töku flótta­manna. Með lög­un­um er öll­um sem fá land­vist­ar­leyfi tryggð sama þjón­usta og greiðslur óháð því hvernig þeir koma til lands­ins,“ segir Sigmundur.

Grein hans má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.