Sig­mundur Davíð ætti ekki að vera leiðar­ljós for­eldra í barna­upp­eldi

Una María Óskars­dóttir, vara­þing­maður Mið­flokksins, var máls­hefjandi um bætt upp­eldi, leið til for­varna og lýð­heilsu í þinginu í morgun. Una María sagði fjöl­miðla allt­of oft færa al­menningi fréttir af van­líðan, heimilis­of­beldi og eitur­lyfja­neyslu ungs fólks. Una María nefndi ýmsa þætti en fyrir­ferðar­mestir voru of­beldis­tölvu­leikir. Um leikina sagði Una María:

„Í gær heyrði ég sögu um níu til tíu ára drengi sem höfðu fengið að valsa greini­lega í of­beldis­tölvu­leikjum og ljótur tals­máti þeirra var farinn að berast um bekkinn. Með leyfi for­seta vil ég um­orða þau hryllings­orð sem þeir létu falla og mín orð eru þessi:

„Fyrst velur þú þér port­konu til að sænga hjá, síðan velur þú um nokkrar leiðir til að taka hana af lífi.“

Þið getið rétt í­myndað ykkur hver orðin voru í raun.“

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata

Þór­hildur Sunna sagði það væri góðra gjalda vert að hugsa um lýð­heilsu barna en setti stórt spurningar­merki við að Sig­mundur Davíð ætti að vera leiðar­ljós for­eldra þegar kæmi að upp­eldi. Þór­hildur Sunna sagði:

„Það er góðra gjalda vert að hugsa um lýð­heilsu barna en ég get ekki sagt að hátt­virtur þing­maður, Sig­mundur Davíð ætti að vera leiðar­ljós for­eldra í upp­eldinu, með sínar forn­eskju­legu hug­myndir um barna­upp­eldi.

Mér eru enn minnis­stæð orð hans í Krydd­síldinni á síðasta ári þar sem hann gat ekki hugsað sér að börn fræddu for­eldra sína um lofts­lags­breytingar. Þessu ætti að vera öfugt farið, for­eldrar ættu að fræða börn sín og búið, burt­séð frá því að að­gerðar­leysi for­eldra ógna fram­tíð barnanna.“

Þór­hildur Sunna fannst Una María senda ó­ljós skila­boð um hvað væri þess valdandi börn gripu til of­beldis. Upp­lifun þing­manns Pírata var að eldri kyn­slóðin liti á þá yngri sem ó­alandi, ó­ferjandi og miklu ó­styrlátari en þegar þau voru á sama aldri.

„Mér finnst ég skynja þennan anda svífa yfir vötnum sem endra­nær þegar mál­efni ungs fólks eru rædd, enda á ungt fólk fáa full­trúa hér.“ Þá sagði Þór­hildur Sunna að lokum:

„Ég vil því koma yngstu kyn­slóðinni til varnar. Hún er betur búin, víð­sýnni og jafn­vel rétt­sýnni en við öll hér með tölu. Það færi því vel á því að við leyfðum þeim endrum og eins að ala okkur upp.“