Sigmar vill að þingið staðfesti takmarkanir - Diljá: „Við getum ekki fríað okkur ábyrgð“

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að það gangi ekki upp að Landspítalinn sé flöskuháls sem valdi því að fólk geti ekki stundað vinnu svo mánuðum skipti og búi við allskyns takmarkanir á mannréttindum.

Þetta sagði Sigmar í viðtali í útvarpsþættinum Bítið í Bylgjunni í morgun.

Sigmar sagðist sakna þess að fá upplýsingar um það hvað væri verið að gera til að styrkja stöðu spítalans þannig að ekki þyrfti að setja meiriháttar skerðingar á mannréttindi fólks vegna 20 til 30 manns sem þurfi að leggjast inn á spítala vegna Covid-19.

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var með Sigmari í viðtalinu. Hún sagði að misskilings hefði gætt í umræðu um hlutverk alþingismanna í umræðunni um sóttvarnaaðgerðir vegna Covid-19. Hún sagði Alþingi ekki eingöngu löggjafa heldur einnig mikilvægan vettvang lýðræðislegrar umræðu. Alþingi færi með eftirlits- og aðahaldshlutverk gagnvart stjórnvöldum og stjórnsýslunni og að þingmönnum bæri skylda að taka þátt í því.

„Við getum ekki fríað okkur ábyrgð þegar það kemur að svona stórum málaflokki og staðið til hliðar við hann,“ sagði Diljá meðal annars. Hún sagðist jafnframt vilja að hér á landi yrði brugðist við breyttum veruleika líkt og nágranna ríkin væru byrjuð að gera. Þar vísaði hún til styttingar á einangrun og rýmkun á sóttkvíarreglum.

Þingið með í ákvörðunum

Sigmar tók undir með Diljá en þau voru sammála um að þingið þyrfti að fá að taka þátt í ákvörðunum um sóttvarnaaðgerðir. Ríkisstjórnin ein og sér ætti ekki að sjá um þau mál.

Að sögn Sigmars hafi sama fyrirkomulag verið á ákvörðunum um sóttvarnaaðgerðir síðastliðin tvö ár og vísaði hann þar til minnisblaðsins sem sóttvarnalæknir skilar til ríkisstjórnarinnar, „svo ákveður ríkisstjórnin eitthvað á einhverjum á fundi og afleiðingin af því er að það eru meiriháttar takmarkanir á öllum okkar mannréttindum og þetta er orðið svo öfugsnúið að nú þurfum við að fara rökstyðja eðlileg réttindi en ekki takmarkanir á eðlilegum réttindum.“

Þá gekk Sigmar lengra og sagði að jafnvel væri hægt að hafa það þannig að þingið þyrfti að staðfesta takmarkanir á mannréttindum fólks.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér.