Sigmar Vilhjálmsson veitingamaður segir að síðasti mánuður í fyrirtækjarekstri hafi vægast sagt verið snúinn. Sigmar hefur gagnrýnt ríkisstjórnina nokkuð harðlega að undanförnu og á Facebook-síðu sinni í gær birti hann nokkur dæmi um þá upplýsingaóreiðu sem hefur verið í gangi að undanförnu.
„Hér er skjáskot af fréttum fjölmiðla (takið eftir dagsetningum frétta). Hvernig á að vera hægt að reka fyrirtæki í svona umhverfi,“ spyr Sigmar og bendir á að hver höndin sé uppi á móti hvor annarri.
„Á maður að hlusta á Þórólf eða ríkisstjórnina? Eru stjórnvöld að taka tillit til einkareksturs eða miðast allt við vinnuumhverfi opinberra starfsmanna og fyrirtækja,“ spyr hann enn fremur og heldur áfram:
„Já, síðan má bæta því við að Skatturinn er til í að dreifa opinberum gjöldum til að létta róðurinn en leggja á slíkt 8,6% DRÁTTARVEXTI. Ráðuneytin eru komin á "sleepmode" vegna sumarfría og þau vita að kosningar eru á næsta leiti.“
Sigmar fær góðar undirtektir við færslunni og segir leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson að þetta sé ekki öfundsverð staða. „Þið sem eruð í rekstri svona fyrirtækja eigið alla mína samúð. Vonandi varir þetta ekki mikið lengur. Fyrir mitt leyti þá mun þetta atriði vega þungt þegar kemur að því að merkja x í kjörklefanum.“
Akureyringurinn Benedikt Sigurðarson, fyrrverandi stjórnarformaður KEA, bendir á að það sé ekki Þórólfi að kenna að Delta-afbrigðið flæði hér um. Sigmar svarar að bragði og segir eitthvað segja honum að Benedikt sé starfsmaður ríkisins.
„Enda virðist Ísland vera tvær þjóðir, ríkisstarfsmenn sem þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af afkomu sinni almennt og síðan 72% þjóðarinnar sem vinnur í einkafyrirtækjum og hafa ofan á allar aðrar Covid áhyggjur, áhyggjur af afkomu sinni til lengri tíma. Covid er ekki dauðaveira, tölfræðin synir það. Hvað þá þegar búið er að bólusetja 80% þjóðarinnar. Þórólfur stendur sig frábærlega sem sóttvarnarlæknir, en við getum ekki stýrt samfélaginu á því sjónarmiði einu og sér lengur!“
Benedikt gefur lítið fyrir svar Sigmars og gagnrýnir hann fyrir að vera ómálefnalegur í svari sínu. „Röklega ertu í þroti með þetta drengur; Þórólfur er einmitt að gera það sem honum ber lagalega og faglega - - að upplýsa fólk. Þú getur fabúlerað einhverja órökstudda vitleysu um afleiðingar eða ekki afleiðingar - af Covid-sýkingum - tölfræðin staðfestir að sýkingar og dauðsföll eru margfalt tíðari en svo að hægt sé að láta veiruna flæða - og meira að segja fullbólusettir veikjast alvarlega. Langtíma-afleiðingar af sýkingu virðast vera svo tíðar að það kann að valda samfélagslegu langtímatjóni af stórum skala. Við vitum enn ekki hversu alvarleg eftirköst bólusettir sem sýkjast munu glíma við,“ segir hann og ítrekar að veiran sé vandamálið, en ekki Þórólfur eða viðbrögð við veirunni.