Sigmar Guðmundsson, einn af okkar allra bestu fjölmiðlamönnum, er að kveðja RÚV eftir langt og farsælt starf. Eins og kunnugt er hefur Sigmar ákveðið að þiggja 2. sætið á lista Viðreisnar fyrir kosningarnar í haust.
„Þetta er auðvitað stór og mikil ákvörðun fyrir mig og það var bæði auðvelt og erfitt að að komast að þessari niðurstöðu,“ segir Sigmar og bætir við að ákvörðunin hafi verið auðveld að því leyti að stefna Viðreisnar höfðar sterkt til hans.
„Hugtök eins og frjálslyndi, almannahagsmunir, jafnrétti og alþjóðasamstarf eru ekki bara orð á blaði heldur raunveruleg stefna sem hefur verið fylgt eftir af þingmönnum flokksins með kröftugum og öfgalausum málflutningi í þinginu.“
Sigmar segir að ákvörðunin hafi að sama skapi verið erfið í ljósi þess hvað vinnustaðurinn RÚV hafi gefið honum óendanlega mikið.
„Þar hef ég fengið frábær tækifæri til að sinna fjölbreyttum fjölmiðlaverkefnum, allt frá ritstjórn í stórum fréttaþætti yfir í að stýra skemmtiþáttum fyrir fólk á öllum aldri. En fyrst og síðast hef ég eignast þar góða vini sem hafa stutt mig með ráðum og dáð. Fyrir það er ég óendanlega þakklátur og ég er mjög stoltur af því að hafa verið partur af þessu frábæra liði. Ég á eftir að sakna RÚV,“ segir hann.
Sigmar segir að aftur á móti hafi togað í hann að prófa eitthvað nýtt og þetta orðið niðurstaðan.
„Ég hlakka mikið til að vinna með frambjóðendum Viðreisnar á næstu mánuðum. Þetta eru öflugir listar og sterkir oddvitar í öllum kjördæmum. Það hefur verið tekið vel á móti mér í Viðreisn, flokksstarfið er greinilega öflugt og fólkið skemmtilegt. Spennandi tímar fram undan.“
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi útvarpsstjóri og samstarfsmaður Sigmars til margra ára, stenst ekki mátið og sendir Sigmari létt skot. Hann segir undir færslu hans:
„Á dauða mínum átti ég von... En gangi þér vel vinur!“