Sigmar Vilhjálmsson, þingmaður Viðreisnar, segir það mjög sérstaka tímasetningu að þegar Jón Gunnarsson innanríkisráðherra sé að leggja fram lagafrumvarp gegn mútubrotum þá sé Brynjar Níelsson aðstoðarmaður hans að spyrja Jón Trausta Reynisson, ritstjóra Stundarinnar, út í heimildarmenn í máli sem tengist meintri mútustarfsemi.
Sigmar segir í grein á vef Kjarnans að svarið hvernig á þessu standi sé einfalt:
„Stórfyrirtæki er grunað um alvarlegt brot. Það voru fjölmiðlar sem upplýstu um brotið. Fyrirtækið bregst við með árásum á blaðamenn. Fjölmiðlar upplýsa um hverjir eru á bak við árásirnar. Þeir sem taka sér sjálfkrafa stöðu gegn fjölmiðlunum í þessari atburðarás, en þegja yfir framgöngu fyrirtækisins, eða jafnvel verja það, eru á glerhálum villigötum,“ segir hann.
Sigmar segir að hann voni að ráðherra sé ekki á sömu skoðun og Brynjar:
„Að þessi rödd komi úr ráðuneyti sem hýsir lögreglu, ákæruvald og dómstóla er engu að síður óverjandi. Að þessi rödd heyrist hæst þegar hagsmunir útgerðarfyrirtækis kalla á er hins vegar ákaflega fyrirsjáanlegt.“
Slík viðhorf afhjúpi hvers vegna áhyggjur séu af stöðu blaðamanna: „Svona skilningsleysi, byggt á trénuðu viðhorfi til fjölmiðlafrelsis, er hættulegt. Það er ekki bara einhver sérviska blaðamanna eða nöldur í stjórnarandstöðu að halda slíku fram,“ segir Sigmar, þar á meðal séu stjórnmálamenn og ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka. „Það eru ekki verðlaun í boði fyrir þá sem vita svarið við því hvaða flokkur er ekki með í þessari vegferð. Svarið er of augljóst.“