Sig­mar segir af­léttingar­á­ætlunin von­brigði. „Það eru þrír á gjör­gæslu“

Sig­mar Guð­­munds­­son, þing­­maður Við­reisnar, segir að nýjar breytingar á sótt­vörnum séu „hænu­skref í rétta átt“. Þetta kemur fram í færslu sem hann birtir á Face­book síðu sinni.

„Það hafa verið þrír á gjör­­gæslu að jafnaði frá ára­­mótum og tölur frá því gær segja að 20 hafi legið á spítalanum vegna Co­vid, þótt fleiri hafi vissu­­lega verið með Co­vid en verið inni­­liggjandi af öðrum á­­stæðum. Ná­granna­lönd okkar eru að ganga enn lengra en við og eru sum hver að af­létta öllu. Það er því ó­­hætt að segja að þessi af­léttinga­á­ætlun valdi von­brigðum,“ segir Sig­mar.

Ríkis­stjórnin til­kynnti nýjar reglur í dag sem taka gildi á mið­nætti. . 50 mega koma saman og nándar­regla verður einn metri í stað tveggja. Þá verður enn grímu­skylda. Vonast er til þess að hægt verði að af­létta öllum tak­mörkunum á sex til átt vikum.