Sigmar ósáttur við Brynjólf: Ef eitthvað er mætti taka á móti fleiri flóttamönnum frá Afganistan

Sigmar Guðmundsson, sem skipar 2. sætið á lista Viðreisnar í suðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar, gagnrýnir skrif Brynjólfs Þorkels Brynjólfssonar, frambjóðanda Miðflokksins, sem birtust á síðum Morgunblaðsins í gær og Hringbraut fjallaði um í gærkvöldi.

Í grein sinni lýsti Brynjólfur, sem skipar 3. sætið á lista Miðflokksins í suðvesturkjördæmi, þeirri skoðun sinni að Íslendingar ættu frekar að leysa vandamálin heima fyrir áður en farið verður í að taka á móti flóttamönnum frá Afganistan vegna ástandsins sem þar ríkir.

„Það væri fráleit niðurstaða núna að fara að efna til sérstakra fólksflutninga frá Afganistan til Íslands í einhverri keppni ráðherra landsins við að beina sjónum frá því hvernig þeir eru að skilja við íslenska velferðarkerfið. Missum ekki sjónar á því sem skiptir mestu,“ sagði Brynjólfur meðal annars í grein sinni.

Sigmar gagnrýndi þessi skrif harðlega á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi og sagði viðhorf Brynjólfs „trénað og grámyglulegt“ meðal annars.

„Fyrir það fyrsta þá lýsir það afar einkennilegu viðhorfi til samhjálpar og samkenndar að ekki eigi að hjálpa Afgönum vegna þess að við berum enga ábyrgð á ástandinu. Eigum við bara að hjálpa fólki í neyð ef við sjálf erum ábyrg fyrir neyðinni? Ætlar Miðflokkurinn að halda fast í þessa delluskoðun ef það verða stórir mannskæðir jarðskjálftar í útlöndum, flóðbylgjur eða aðrar hamfarir? Við berum jú enga ábyrgð á náttúruöflunum og hljótum því að vera stikkfrí,“ segir Sigmar sem heldur áfram:

„Í öðru lagi er það hallærislegt að fela fordómana síðan í einhverjum orðavaðli um að þetta sé sagt í einhverri góðmennsku og umhyggju fyrir Íslendingum sem þurfa að leita til velferðarkerfisins. Við eigum ekki hjálpa ÞEIM heldur OKKUR. Hvað með að gera hvoru tveggja og nota bara orðið VIÐ um báða hópana? Við erum jú öll manneskjur. Að stilla hópum upp á móti hverjum öðrum með þessum hætti er ekki boðlegt. Ég fagna því mjög að við Íslendingar tökum á flóttafólki frá Afganistan. Ef eitthvað er þá mætti hópurinn vera stærri.“