Sig­mar braust inn í blóma­búð á Egils­stöðum: „Að sögn lög­regl­unn­ar sparkaði þjóf­ur­inn upp hurð á versl­un­inni“

Í nýjasta hlað­varps­þætti 70 mínútur greindi Sig­mar Vil­hjálms­son frá því að hann hafi brotist inn blóma­búð á Egils­stöðum á­samt vini sínum þegar hann var 16 ára gamall en mbl.is greindi fyrst frá.

Sig­mar segist þó hafa séð eftir þessu strax og skilaði ráns­fengnum meðan vinur hans var að neita fyrir inn­brotið á lög­reglu­stöðinni.

Morgun­blaðið fjallaði um bernsku­brek Sig­mars árið 1993 en þar segir að hann hafi stolið 20 þúsund krónum úr peninga­kassanum:

„BROT­IST var inn í blóma­versl­un­ina Blóma­bæ á Eg­ils­­stöðum í fyrri­nótt og stolið þaðan um 20 þúsund krón­um sem voru í pen­inga­­kassa. Að sögn lög­regl­unn­ar sparkaði þjóf­ur­inn upp hurð á versl­un­inni en að öðru leyti vann hann ekki skemmd­ir á hús­­næðinu. Hann er ó­fund­inn.

Í síðustu viku var brot­ist inn í Stólpa á Eg­ils­­stöðum, sem er verndaður vinnu­staður, og stolið þaðan um 20 þúsund krón­um. Það mál er enn ó­upp­­­lýst en lög­regl­an tel­ur ekki úti­­lokað að þessi tvö mál teng­ist,“ seg­ir í frétt Morg­un­blaðsins af inn­brot­inu.