Sigmar birtir dæmi um óreiðuna: „Þetta er verulegt áhyggjuefni“ – Sjáðu myndirnar

Sigmar Guðmundsson, sem skipar 2. sætið á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, gagnrýnir ríkisstjórnina nokkuð harðlega fyrir upplýsingaóreiðu. Hann birtir skjáskot af þremur nýjum fréttum sem dæmi um þetta.

„Þessar þrjár nýju fréttir eru ágætt dæmi um hversu fálmkennd og þversagnakennd viðbrögð stjórnvalda eru þessa dagana í faraldrinum. Sannkölluð upplýsingaóreiða. Fréttirnar segja okkur þá sögu að Sigurður Ingi vill dreifa sjálfsprófum inn á hvert heimili. En það er óheimilt að selja þau. Og Þórólfur treystir þeim ekki.“

Sigmar segir í athugasemd undir færslunni að hugsanlega hafi Þórólfur eitthvað fyrir sér í þeim efnum að mögulega séu sjálfsprófin ekki jafn örugg. En þó þau séu það hljóti þau þó að geta verið eitt vopnið í vopnabúrinu.

„Vandinn er einfaldlega sá að þegar búið er að venja þjóð við að skerðing mannréttinda sé eðlileg leið til að díla við vandamál þá er auðveldara að grípa til þess en að leggja alla krafta í að efla spítalann og skimunargetuna á landmærunum. Þetta er verulegt áhyggjuefni, satt best að segja.“