Sighvatur þurfti að borga hótelgistingu á Íslandi með evrum – „Þetta eru bara reglur,“ sagði starfsmaðurinn

„Ég er nú Evrópu­sinnaður maður, en þetta finnst mér full langt gengið,“ segir Sighvatur Björg­vins­son, fyrrverandi ráðherra og formaður Alþýðuflokksins, í samtali við Fréttablaðið.

Fréttablaðið sagði frá því í gærkvöldi að íslenskir hótelgestir sem hafa pantað gistingu hér á landi á erlendum bókunarsíðum þurfi gjarnan að greiða fyrir næturvistina með evrum í stað íslenskra króna.

Sighvatur furðar sig á þessu en hann var á ferð um Vestfirði um liðna helgi með eiginkonu sinni, Björk Melax. Þegar kom að uppgjöri vegna gistingar á Fosshóteli Vestfjörðum á Patreksfirði var hann aftur á móti krafinn um greiðslu í evrum.

„Gistingin kostaði okkur hjónin tæpar fimm­tíu þúsund krónur og látum það nú vera, við vissum að ís­lensk hótel eru hátt verð­lögð á þessum árs­tíma, en ég undraðist það nokkuð að þurfa að greiða gistinguna fyrir fram – og enn meira þegar ég var krafinn um evrur til að greiða fyrir hana,“ segir Sig­hvatur við Fréttablaðið.

For­svars­menn Ís­lands­hótela sem reka Foss­hótel hringinn í kringum landið segja að svona sé í pottinn búið þegar ferða­menn panti gistingu á er­lendum bókunar­síðum á borð við booking.com, en þar séu verð að jafnaði gefin upp í evrum, velji þeir ekki sér­stak­lega inn­lenda gjald­miðilinn.

„Ég pantaði gistinguna vissu­lega á booking.com, en ég pantaði hana ekki í evrum,“ segir Sig­hvatur.

Hann furðar sig á því að ís­lensk hótel geti ekki tekið við ís­lenskum gjald­miðli, þótt ferða­menn panti gistinguna raf­rænt. „Þetta eru bara reglur, sagði starfs­maðurinn í afgreiðslunni og þar við sat,“ bætir hann við.