Sighvatur skilur ekkert í RÚV: „Er kona ekki maður?“

Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, skrifar opið bréf til málfarsráðunautar RÚV sem birt er í Morgunblaðinu í dag. Fyrirsögn greinarinnar er: Er kona ekki maður? – opið bréf til málfarsráðunautar RÚV.

Í grein sinni bendir Sighvatur á að um síðustu áramót hafi farið fram á RÚV það sem áður var nefnt val á manni ársins.

„Nú brá svo við að í stað þess var sagt í RÚV að fram hefði farið val á manneskju ársins. Mér er sagt að ástæðan hafi verið sú að þú – málfarsráðunautur ríkisútvarpsins – hafir ekki viljað viðurkenna í orði að karlmenn og kvenmenn gætu hvor tveggja verið menn. Værir sem sé ekki sammála Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, þegar hún tjáði sig með þessum hætti í kosningabaráttu sinni: „Fólk á ekki að velja mig vegna þess að ég er kona, heldur vegna þess að ég er maður.“

Í bréfi sínu segir hann að álit málfarsráðunautar hafi verið að það mætti með engu móti rugla kynjunum saman með því að kalla bæði konur og karla menn.

„Ef svo er, hvernig stendur þá á því að þú heimilar ríkisútvarpinu að greina frá því að eftir sérhvern þátt sem fluttur er í RÚV og eftir sérhvern fréttatíma sé sagt að tæknimaður þáttarins hafi heitið þetta og hitt – karlmanns- eða kvenmannsnafni? Ef þú telur brýna nauðsyn bera til að kyngreint sé í starfsheiti og í tegundarheiti ellegar afstöðunafngift ber þá að sundurgreina t.d. mannúð og kvenúð – eftir því hvort kynið kemur við sögu – ellegar menningu og kvenningu, manngæsku og kvengæsku, manngreinarálit og kvengreinarálit o.s.frv. Eða ef þú vilt ekki kyngreina eftir því sem þú segir kyngreiningarheitið vera, hvernig viltu þá orða þetta undir samheitinu manneskja? Að tæknimanneskja þáttarins hafi verið …?“

Sighvatur segir að Íslendingar verði að gera sér grein fyrir því – og þeir geri það flestallir – að þeir erfðu málskilning og málvitund sem þeim ber að varðveita.

„Engu máli skiptir í því sambandi hvort kynin eru tvö eða sautján. Öll erum við menn. Málfarsráðunautur RÚV skiptir þar máli. Fráleitt er að hún beiti valdi sínu til þess að rugla málskilning landsmanna og taka upp kyngreiningu þar sem kyngreining er ekki viðhöfð og hennar er engin þörf. Karlmaður og kvenmaður eru bæði menn. Menning á við bæði kynin, mannúð líka, manngæska einnig. Sömuleiðis manngöfgi sem og allar þær nafngiftir sem táknaðar eru með heitinu maður. Karlmaður og kvenmaður eru bæði maður.“

Sighvatur segir í grein sinni að sá sem kjörinn er maður ársins geti verið hvort heldur sem er karl eða kona – eða aðhyllist hvert það kyn sem sagt er vera eiginlegt mannkyninu.

„Hví segi ég það? Ég segi það vegna þess að orðið „mannkyn“ merkir ekki bara kyn karla heldur kyngreind alls þess mannfólks sem jörð okkar byggir. Þarf virkilega að segja málfarsráðunaut RÚV það? Eða er menntun hennar ofar skynsemi?“