Sighvatur: Hinn feiti sér um að fitusmána sjálfan sig

Sighvatur Björgvinsson, fyrrum þingmaður og ráðherra, hefur ritað grein í Kjarnann þar sem hann leggur út af offitufréttaskýringu Kveiks í vikunni og miklum viðbrögðum í kjölfarið. Sighvatur segir að sá feiti sjái um að fitusmána sjálfan sig.

„Setjum sem svo, að ég segi við vin minn: „Þú ert orð­inn allt of þung­ur. Það veldur öll­um, sem þér þykir vænt um, sál­arkvölum – kon­unni þinni, börn­unum þín­um, vin­unum þínum - og sjálfum þér miklu heilsutjón­i“, þá telst ég vera að fitu­smána vin minn alger­lega að ósekju og sjálfum mér til mik­ils ámæl­is. Sá vinur minn, sem orð­inn er 140 til 150 kg. á þyngd, hefur alger­lega séð um það sjálfur að fitu­smána sig. Á við engan annan en sjálfan sig að sakast og getur til einskis ann­ars leitað en fyrst og fremst til sjálfs sín að takast á við það vanda­mál sitt með árangri og með ann­ari hjálp, sem hinn fitu­smáði verður þó sjálfur og einn að bera sig eft­ir,“ segir í grein fyrrum ráðherrans í Kjarnanum.

Þá rifjar Sighvatur upp að sem barn á Vestfjörðum þar sem hann ólst upp hafi í jafn­aldra­bekkjum í barna­skóla á Ísa­firði verið um 70 önnur börn. Í öllum þessum hópi hafi aðeins verið einn dreng­ur, sem sagður var vera feitur.

„Var það vegna þess, að heilsu­gæslan á Ísa­firði væri svona mann­mörg og skipti sér svona mikið af fæðu­upp­eldi barn­anna?“ spyr Sighvatur.

„Nei, það var ein­fald­lega vegna þess, að upp­eldi barna var í höndum for­eldra,“ svarar Sighvatur sjálfur.

Hann beinir svo spjótum að Kveik og skrifar:

„Í Kveik virt­ist vera að það [aukin ofþyngd] væri sök heilsu­gæslu­stöðv­ar­inn­ar. Þar þyrfti fleiri starfs­menn: Lík­amsþjálfa, fæðu­speci­alista, fjöl­skyldu­ráð­gjafa, mennt­aða fag­menn og fag­kon­ur. Aldeilis hreint ekki neina fitu­smán­ara.“