Siggi Stormur: Vorið er á leiðinni

Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur, segir vorið á leiðinni. Siggi Stormur sjálfur er þess fullviss, að því er fram kemur ávef Fréttablaðsins.

„Veðrahvolfið er að þykkna og það er vís­bending um að vorið sé á leiðinni“, segir Sigurður í sam­tali við Frétta­blaðið.

Íslendingar verða þó að sætta sig við Páskahretið svokallaða. „Páskarnir eru nokkuð seint í ár en við munum þó senni­lega fá hret, og það gæti komið fyrir eða eftir páska“, segir Sigurður.

Viðtal Fréttablaðsins við Sigga í heild sinni.