Siggi Stormur hættur í Miðflokknum: „Svona áfall gjörbreytir hugsun manns“

„Nú hef ég gert upp hug minn og ákveðið að hætta í Miðflokknum og yfirgefa hægrið,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, betur þekktur sem Siggi Stormur, í færslu á Facebook-síðu sinni.

Þar greinir Sigurður frá því að hann sé hættur í Miðflokknum og genginn til liðs við Samfylkinguna. Sigurður var oddviti flokksins í Hafnarfirði fyrir síðustu kosningar en flokkurinn náði ekki inn manni.

„Jæja þá er það ákveðið! Þegar maður stendur á tímamótum er hollt að fara í gagnrýna sjálfskoðun. Eins og margir vita lentum við hjónin í miklu áfalli þegar sonur okkar varð lífshættulega veikur mánuðum saman og sér ekki fyrir endann á. Svona áfall gjörbreytir hugsun manns og lífið og lífsgæði fara í fremsta þrep. En þó áföllin dynji yfir mann, þá verður maður líka að reyna að halda áfram,“ segir Sigurður í færslu sinni.

Hann segir að þegar hann fór að spegla sig við flokkana hafi hann komist að því að hann vildi setja manngæsku og mannlegar þarfir í fyrsta sæti.

„Ég hef alltaf verið svolítið til hægri og hef haft gaman að pólitísku vafstri. Nú hef ég gert upp hug minn og ákveðið að hætta í Miðflokknum og yfirgefa hægrið. Ég hef semsagt ákveðið að færa mig yfir línuna til vinstri og ákveðið að ganga til liðs við Samfylkinguna.“

Sigurður segir að í Samfylkingunni sjái hann samsvörun við það sem honum finnst öllu máli skipta; lífsgæði og velferð fólks.

„Ég finn að ég er sáttur við sjálfan mig að hafa tekið þessa ákvörðun og ber ekki kala til nokkurs manns. Ég hlakka hins vegar mikið til að fá að starfa með bæjarmálaflokki Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Svo mörg voru þau orð - hlýjar kveðjur til ykkar allra.“