Sigurður Sigurjónsson, einn ástsælasti leikari þjóðarinnar síðastliðna áratugi, opnaði sig í viðtali á RÚV um föðurmissinn.
Sigurður hefur skemmt Íslendingum í áratugi á skjánum, á sviði og á hvíta tjaldinu en langflestir landsmenn þekkja ódauðlegar persónur sem hann hefur glætt lífi.
Í viðtalinu á RÚV segist hann þó hlédrægur og feiminn og þeir sem þekkja hann taka undir það. Hann segir það hafi komið á óvart þegar hann leiddist út í leiklistina.
Sigurður fer um víðan völl í viðtalinu og ræðir æsku sína og föðurmissi en hann var fimm ára gamall þegar faðir hans lést. . „Ég hins vegar verð fyrir því áfalli þegar ég er bara fimm ára gamall, þá missi ég pabba minn. Hann var sjómaður og drukknaði,“ segir Sigurður í samtali við RÚV.
„Það var til siðs á þessum árum, sem hefur breyst sem betur fer til hins betra, að til þess að hlífa okkur þá var ekkert rætt um þennan pabba okkar. Hann var bara strokaður út,“ bætir Sigurður við.
Til að hlífa honum og bróður sínum, Hreiðari, fyrir sárum minningum var faðir þeirra aldrei ræddur.
„Ég sagði aldrei pabbi, bara orðið. Ekki fyrr en ég var sjálfur orðinn pabbi og heyrði börnin mín segja þetta,“ segir Sigurður. „Þetta var bara orð, það var strokað út úr orðabókinni. Það var mjög erfitt. Ég fattaði það eiginlega ekki fyrr en ég eignaðist börn sjálfur, þegar ég sagði orðið pabbi. Það var mjög sterk tilfinning.“
Hægt er að horfa viðtalið í heild sinni hér.