Siggi Gunnars kveður eftir átta ár á K100: „Kominn í drauma­starfið“

Sigurður Þorri Gunnars­son, eða Siggi Gunnars eins og hann er gjarnan þekktur kveður K100 eftir átta ára starf. Í sam­tali við Frétta­blaðið segist hann fullur til­hlökkunar yfir nýja starfinu sem tón­listar­stjóri Rásar 2 en að hans sögn er það sann­kallað drauma­starf.

Siggi Gunnars segir al­manna­út­varp hafa verið sér hug­leikið lengi og því hafi hann slegið til og sótt um starfið þegar það var aug­lýst en hann hefur starfað sem dag­skrár- og tón­listar­stjóri út­varps­stöðvarinnar K100 um ára­bil.

Í til­kynningu frá RÚV segir að starfið hafi verið aug­lýst í byrjun mars og að gengið hafi verið frá ráðningu við Sigga Gunnars í gær. Í rök­stuðningi fyrir ráðningunni kom fram að hann upp­fyllti allar hæfni­kröfur mjög vel, hefði menntun á sviði fjöl­miðla­fræði og út­varps á­samt því að búa yfir mikilli reynslu af dag­skrár­gerð og tón­listar­stjórn.

Mbl hefur greint frá því að Ágúst Héðins­son, við­skipta­fræðingur, hafi verið ráðinn nýr dag­skrár­stjóri út­varps­sviðs Ár­vakurs sem rekur K100 í stað Sigga Gunnars. Magnús E. Kristjáns­son út­varps­stjóri Ár­vakurs segist óska Sigga Gunnars vel­farnaðar á nýjum vett­vangi og þakkar honum gott sam­starf.

Sex ára með út­varps­bakteríu
Siggi Gunnars segist hafa verið sex ára þegar hann fékk út­varps­bakteríuna. „Litli-Siggi var bara sex ára þegar hann fékk að fylgjast með Gesti Einari að störfum á RÚVAK en þaðan sendi hann út þáttinn Hvíta máva að loknum há­degis­fréttum. Eftir það var ekki aftur snúið, út­varps­bakterían var komin til að vera.

Al­manna­út­varp hefur verið mér hug­leikið lengi, en bæði BA rit­gerðin mín og MA verk­efnið mitt fjölluðu ein­mitt um hlut­verk al­manna­út­varps og í meistara­náminu í Bret­landi lagði ég sér­staka á­herslu á að kynna mér vel út­varps­hluta BBC,“ segir Siggi Gunnars meðal annars í færslu á Face­book.