Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson, lætur Vöndu Sigurgeirsdóttur formann KSÍ og Ríkisútvarpið heyra það í pistli á Facebook.
„Ríkisútvarpið er að fara að sýna frá HM í knattspyrnu karlalandsliða.
Stjórnendur RÚV hafa reynt að skapa rikishlutafélaginu þá ímynd að þar á bæ berjist starfsmanneskjur gegn hvers kyns ofbeldi. Þess vegna fá meintir ofbeldismenn ekki tónlist sÍna spilaða hjá RÚV; þeir verða ekki til,“ skrifar Sigurður.
„Stjórnendur Ríkisútvarpsins sáu hins vegar ekkert athugavert við að kaupa sýningarrétt að HM í Katar þar sem ofbeldi og mannréttindabrot eru daglegt brauð og mannvirkin sem leikir fara fram byggðir af þrælum, hverra líf var einskis virði. Fyrir stuðning við þessa ofbeldismenn kaus RÚV að greiða stórfé gegnum hin spilltu alþjóðlegu knattspyrnu samtök-FIFA,“ heldur Hann áfarm.
„Það fé bjuggu stjórnendur RÚV ekki til heldur eru þeir að styðja ofbeldi með skattfé og auglýsingafé sem kemur frá fyrirtækjum sem þykjast hafa einhverja samfélagslega ábyrgð en eru með öllu sneidd henni eins og stjórnendur RÚV sem alltaf eru til í að dansa kringum gullkálfinn og haga seglum eftir vindi. Til að kóróna vitleysuna og undirstrika hræsnina hefur RÚV ákveðið að senda lið af íþróttadeild til Katar þó Ísland eigi þar engan fulltrúa, nema kannski formann KSÍ, sem seldi aröbum í nágranna ríki Katar nýlega afnot af karlalandsliði Íslands í nafni baráttu sinnar fyrir jafnrétti og bættri stöðu kvenna í landi kaupandans,“ skrifar Sigurður.
Sigðurður segir að RÚV hefur að eigin sögn ekki náð tali af formanninum til að ræða þessa sölu og árangurinn af jafnréttisspjalli hennar við arabana, enda fer hún alltaf í felur þegar flett er ofan af getu- og prinsippleysi hennar.
„Kannski nær íþróttadeild RÚV viðtal við formanninn í sandinum og sólinni í Katar, þar sem þau fá sameiginlega notið afrakstur ofbeldis stjórnvalda þar í landi. Rannsóknarblaðamennirnir á RÚV hafa ekki treyst sér til Katar til að bera viðbjóðinn sem hefur þar viðgengist berum augum. Það er of hættulegt fyrir þær hetjur að fara mikið út fyrir dyr útvarpshússins.“
„RÚV ætti fyrir hverja útsendingu frá HM í Katar í nafni baráttu fyrir bættum heimi að sýna brot af sögu þeirra í það minnsta 6.500 verkamann sem létust við gerð þeirra mannvirkja sem skapa umgjörð um útsendinguna og opna söfnunarreikning fyrir þá sem ekkert eiga en gerðu HM í Katar mögulegt. Sú saga er nokkuð vel þekkt og hefur verið sýnd í það minnsta á norrænum sjónvarpsstöðvum nú í aðdraganda HM.HM er ekki hátíð fótboltans heldur minnisvarði um spillingu og mannréttindabrot sem RÚV vill hampa.“
„Því miður getur enginn sagt RÚV upp, en hægt er að sniðganga útsendingar frá keppninni; gera áhorfið að engu og spilla þar með sjálfshátíð RÚV í boði skattgreiðenda og sniðganga vörur þeirra sem kosta gleðina. Myndbrotið sem fylgir segir meira en nóg um þær fórnir sem færðar hafa verið vegna HM í Katar,“ skrifar Sigurður að lokum.