Siggeir vill að fólk slaki á: Á heima í Grindavík og kemst ekki heim til sín

„NENNIÐI AÐEINS AÐ SLAKA Á Í ÞESSU GOSRUGLI. ÉG KEMST EKKI HEIM ÞVÍ ÉG ER FASTUR Í UMFERÐINNI Á GRINDAVÍKURVEGI!“

Þetta sagði Siggeir F. Ævarsson, framkvæmdastjóri Siðmenntar, á Twitter-síðu sinni síðdegis í gær. Siggeir er búsettur í Grindavík en þar hefur verið gríðarleg umferð síðustu daga. Tugþúsundir hafa farið að gosstöðvunum í Geldingadölum undanfarna daga og var einhverskonar met slegið í gær þegar þúsundir reyndu að komast á svæðið.

Sumir þurftu hreinlega frá að hverfa þar sem engin stæði var að fá. Íbúar í Grindavík sem starfa á höfuðborgarsvæðinu hafa væntanlega margir fundið fyrir þessari auknu umferð sem að stóru leyti liggur um Grindavíkurveg.

Grindvíkingar hafa margir ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi olli íbúum miklu hugarangri og nú komast sumir íbúanna varla leiðar sinnar vegna ferðamannastraums á svæðinu.

Sigurgeir birtir svo skjáskot af leið sem hann fór og ætti alla jafna að taka örfáar mínútur. „Svona án gríns. Þessi 1,7 km leið tók 17 mínútur,“ segir hann.