Sigga Dögg vill fá að vera á brjóstunum: „Nei, takk. Það er komið gott“

Kynfræðingurinn Sigga Dögg liggur sjaldnast á skoðunum sínum og fer sínar eigin leiðir.

„Ég hef ákveðið að þegar èg fer í náttúrulausar ætla èg að vera à túttunum, brjóstunum, bollunum eða hvað sem þú vilt kalla þetta sem danglar framan à mér,“ sagði Sigga við mynd sem hún birti af sér á Instagram í gær.

Sigga Dögg segir að hún þoli ekki að vera í topp og þá virðist hún lítt hrifin af þeirri forræðishyggju sem fólgin er í því að konur þurfi að hylja brjóst sín.

„Nenni ekki að vera pólitísk í sundlaugum landsins og skal hylja mig þar en á öðrum stöðum, nei takk. Það er komið gott. Ömmur og mömmur voru og eru á túttunum á Tene og voru það í Laugardalslauginni í den tid og mig langar að komast aftur à þann stað frelsis,“ segir Sigga Dögg.

„Hoppandi og skoppandi, í potti, sjó og fjöru mætumst við og èg vona að þú blygðist þín ekki við brjóstin mín.“