Hollywood leikarinn Mel Gibson bauð söngkonunni Siggu Beinteins upp á hótelherbergi í Dublin árið 1994.
„En ég fór ekki,“ segir Sigga og hlær. Hún var þá stödd í Dublin að keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision.
Grey Mel hafði enga hugmynd um að hann væri að gefa samkynhneigðri konu undir fótinn.
Sigga deilir sögunni og öðrum mögnuðum minningum frá Eurovision í þættinum Júró með Nínu og Ingunni sem verður frumsýndur á morgun, miðvikudaginn 13. apríl.
Mel Gibson var staddur í Dublin við tökur á kvikmyndinni Braveheart en þau gistu bæði á sama hóteli.
Það ár söng Sigga ballöðuna Nætur.
Fréttablaðið og Hringbraut hita upp fyrir Eurovision 2022 með stórskemmtilegu “grín skríni“ með Júró-stjörnum og álitsgjöfum. Nína Richter og Ingunn Lára kryfja lögin og fara yfir allt það helsta sem þarft fyrir fullkomið Júró-partý. Fréttablaðið fylgir svo Íslandsliðinu alla leið til Torino til að gefa áhorfendum heima Eurovision og ítalska menningu beint í æð.
Hér fyrir neðan má sjá klippu úr spjallinu við Siggu Beinteins.