Sigfús Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og silfurverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum í Peking 2008, er ekki sáttur við frammistöðu íslenska handboltalandsliðsins á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir.
Ísland er úr leik eftir að hafa komist í milliriðla keppninnar en grátlegt tap gegn Ungverjum gerði í raun útslagið og tryggði það að Ísland kæmist ekki áfram. Sigur á Svíum hefði vissulega fleytt okkur áfram en það var allan tímann ljóst að leikur gegn Evrópumeisturum Svía á þeirra eigin heimavelli yrði erfiður.
Íslenska liðið var fjarri sínu besta en fyrir mót töldu veðbankar að Ísland ætti góða möguleika á verðlaunasæti. Tap gegn Ungverjum og Svíum og slök frammistaða framan af gegn Brasilíu í gær sýndi að íslenska liðið stendur bestu liðum heims ekki snúning eins og staðan er í dag.
Sigfús Sigurðsson var lykilmaður í silfurliði Guðmundar á Ólympíuleikunum 2008 og hann var ekki sáttur við skýringar Guðmundar í viðtali við RÚV eftir sigurinn á Brasilíu í gær.
„Gummi Gumm að tala um mismunandi útfærslur á vörninni og heldur virkilega að fólk sjái ekki munin á því. Hann er samt ekki með plan B í vörn, því þá hefði liðið spilað 5-1, 3-2-1, 4-2 eða 5 plúss 1 á annan hvorn vænginn. Hann þarf að axla ábyrgð á döpru skipulagi og slöku gengi.“
Gummi Gumm að tala um mismunandi útfærslur á vörninni og hwldur virkilega að fólk sjái ekki munin á því. Hann er samt ekki með plan B í vörn, því þá hefði liðið spilað 5-1, 3-2-1, 4-2 eða 5 plúss 1 á annan hvorn vænginn. Hann þarf að axla ábyrgð á döpru skipulagi og slöku gengi.
— fusi (@fusi69) January 22, 2023