Sif Sigmarsdóttir, pistlahöfundur hjá Fréttablaðinu, vekur athygli á það í nýjasta pistli sínum hvernig faraldurinn hefur haft áhrif á íbúa heims, og þá ekki síst konur, og spyr hvar sveigjanleikinn sé fyrir konur nú þegar stjórnmálaflokkar lofa öllu fögru fyrir komandi kosningar.
Vísar hún til viðtals við Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, þar sem hún tjáði sig um veikindaleyfi sem hún tók frá störfum nýverið. Svaraði hún af hreinskilni og sagði einfaldlega að hún hafi verið undir miklu álagi og þurfti því að taka sér hvíld.
„Í einni svipan svipti Lilja hulunni af einu stærsta samfélagsmeini samtímans, málefni sem þó er ekki minnst á einu orði í þeim loforðaflaumi sem stefnuyfirlýsingar stjórnmálaflokkanna eru,“ skrifar Sif.
Í kjölfarið bendir hún á hvernig verslanakeðjan Marks & Spencer hafi gert breytingar í verslunum sínum til að svara eftirspurn karlmanna um þægilegri fatnað þar sem margir vinna nú heima vegna Covid, kósi peysur og joggingbuxur væru nú komnar til að vera.
Sif bendir á að Covid hafi haft í för með sér fleiri breytingar og voru það helst konur með börn sem nutu góðs af því að vinna heima í faraldrinum.
„En þótt karlmönnum leyfist nú að mæta á skrifstofuna með stroff í strengnum virðist sú vinnustaðabreyting sem er konum til hægðarauka ekki ætla að hljóta sömu náð fyrir augum stjórnenda. Fjármálaráðherra Bretlands berst nú fyrir því að fólk fari aftur inn á skrifstofurnar upp á gamla mátann frá níu til fimm. Fyrirtækið Google hótar því að skerða laun þeirra sem vinna heima.“
Nú blasi við sú staða að konur sinni að mestu ólaunaðri vinnu á heimilinu og því hafi atvinnuþátttaka kvenna minnkað stöðugt.
„Lilja er ekki ein. Þær eru úti um allt, konurnar sem ganga nú á vegg. En hvar eru kosningaloforðin handa aðframkomnum konum? Hvar eru hugmyndirnar að kvenvænu samfélagi? Hvar er sveigjanleikinn sem myndi létta undir með þeim,“ spyr Sif.
„Í síðustu viku samþykkti skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar að skerða enn frekar sveigjanleika í lífi kvenna. Til stendur að opnunartími leikskóla borgarinnar verði styttur varanlega og munu skólarnir loka 16.30 í stað 17.00 eins og áður var.
Sveigjanleiki er sjálfsagður þegar kemur að vömb karla en ekki lífi kvenna.“