Sif lætur hræsnara heyra það: „Ég er ekki hluti af vanda­­málinu“

Sif Sig­mars­dóttir, einn vin­sælasti pistla­höfundur Frétta­blaðsins, skrifar um loft­lags­mál, Katrínu Jakobs­dóttur og Bill Gates í Frétta­blaðinu í dag af ein­stakri list.

„Þegar raf­­­virkinn minn hringdi dyra­bjöllunni í vikunni fylltist ég kvíða. Síðast þegar við hittumst skildum við í illu. Þá hafði hann komið til að laga ofninn minn. Hann hafði hvesst á mig augun þegar ég opnaði úti­­­dyrnar. „Það tók mig hálf­­­tíma að komast hingað,“ sagði hann eins og tími og rúm væru hindrun sem ég hafði lagt í veg hans. „Má bjóða þér kaffi?“ tuldraði ég af­sakandi. „And­­skotans borgar­ráðið,“ svaraði hann,“ skrifar Sif.

„Raf­­­virkinn minn býr í næstu götu við mig í Islington-hverfi Lundúna­­borgar. Í hverfinu fer nú fram til­­raun. Völdum svæðum hefur verið breytt í „lág­um­­ferðar­­svæði“. Götum er lokað fyrir gegnum­­keyrslu bíla og gangandi veg­far­endum, hjóla­­fólki og börnum að leik tryggður for­­gangur. Er að­­gerðinni ætlað að bæta loft­­gæði og lífs­­gæði. En mál­efnið hefur klofið sam­­fé­lagið harka­­lega í með-og-á-móti.

„Ég hefði verið fljótari að labba hingað,“ sagði raf­­­virkinn og skellti verk­­færa­­töskunni á stofu­gólfið.

„Til þess er leikurinn gerður,“ svaraði ég. Honum var ekki skemmt. Á meðan hann reif í sundur bilaða ofninn minn brýndi hann fyrir mér efna­hags­­legt mikil­­vægi einka­bílsins. Ég brýndi fyrir honum mikil­­vægi þess að geta dregið andann. Hann spurði: „Hvað með gamla fólkið?“ Ég spurði: „Hvað með börnin?“ Hann talaði um frelsið til að fara um. Ég talaði um frelsið til að vera kyrr. Hann sakaði mig um skort á raun­­sæi. Ég sakaði hann um að skorta fram­­tíðar­­sýn,“ heldur Sif á­fram.

Hún segir að síðn hafi liðið eitt og hálft ár.

„Nú var það ljósarofinn í stofunni sem var bilaður. Tauga­ó­­styrk opnaði ég dyrnar. Raf­­­virkinn hvessti á mig augun. „Það tók mig hálf­­­tíma að komast hingað.“ Ég bauð honum kaffi. „Ég myndi keyra yfir borgar­­stjóra Lundúna ef ég sæi hann.“ Ég spurði hvað borgar­­stjórinn hefði gert honum. Jú, hann hugðist láta öku­­menn greiða dag­­gjald, sem óku um á gömlum og mengandi bílum innan borgarinnar. Vissi ég hvað dag­­gjaldið væri hátt? Vissi ég hvað nýr bíll væri dýr? Vissi ég hvað hann yrði að rukka við­­skipta­vini sína mikið auka­­­lega?“

Vand­ræða­leg VG

Sig snýr skrifum síðan að Vinstri grænum og loft­lags­málum.

„Sagt er að í stríði standi enginn uppi sem sigur­vegari. Stríðið í Úkraínu virðist hrekja þá kenningu. Olíu­­fyrir­­­tæki um heim allan skila nú met­hagnaði vegna inn­rásar Rússa. En sigur fer mönnum ekki alltaf vel.

Í vikunni til­­kynnti breska olíu­­fyrir­­­tækið BP að það hygðist hætta við sett mark­mið sín í um­­hverfis­­málum þrátt fyrir tvö­falt meiri hagnað 2022 en árið á undan,“ skrifar Sif.

„Á sama tíma bárust fréttir af því að Katrín Jakobs­dóttir for­­sætis­ráð­herra hefði sent Ur­sulu von der Leyen, for­­seta fram­­kvæmda­­stjórnar Evrópu­­sam­bandsins, bréf og farið þess á leit að Ís­land fengi undan­þágu frá aukinni skatt­lagningu ESB vegna losunar gróður­húsa­­loft­­tegunda í flugi,“ skrifar Sif.

Hún segir að Katrín sé ekki ein um það að vilja vera stikk­­frí í há­­loftunum.

„Bill Gates, stofnandi tölvurisans Micros­oft og fjórði ríkasti maður veraldar, ræddi ný­verið störf sín í þágu lofts­lags­­mála í Breska ríkis­út­­varpinu. Blaða­­maður spurði Gates, sem á fjórar einka­þotur, hvort um­­hverfis­verndar­sinni á einka­þotu væri ekki „hræsnari“. Gates þver­tók fyrir það. „Ég er ekki hluti af vanda­­málinu.“

„Sam­­kvæmt Lofts­lags­­nefnd Sam­einuðu þjóðanna gæti skaði af völdum lofts­lags­breytinga verið orðinn ó­­aftur­kræfur árið 2030. Blaða­­maður Frétta­blaðsins spurði Katrínu Jakobs­dóttur hvort ekki væri vand­ræða­­legt fyrir for­mann um­­hverfis­verndar­­flokks að falast eftir undan­þágu frá að­­gerðum sem ætlað væri að hamla gegn hlýnun lofts­lags. Katrín þver­tók fyrir það. „Nei, það tel ég ekki vera.“

Olíu­­risinn. Raf­­­virkinn. Ríkasti maður heims. Leið­­togi Vinstri grænna. Við getum öll fundið á­­stæðu til að rétt­læta undan­þágur. En ekkert okkar fær undan­þágu frá af­­leiðingum gjörða okkar,“ skrifar Sif.