Sif Atladóttir, fyrrverandi landsliðskona í fótbolta, birtir beiðni til stjórnvalda á Instagram sínu í dag en um 17:00 fer fram stórleikur Íslands og Portúgal þar sem íslensku stelpurnar geta tryggt sér farmiða á HM með sigri.
Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei komist á HM og því margt undir í kvöld.
„Gefið öllum frí frá kl:15:00 í dag, til þess að fólk geti komið sér heim fyrir landsleikinn. Ef það á einhverntiman að gefa frí þá á það að vera í dag. Portúgal - Ísland kl:17:00,“ skrifar Sif á Instagram.