Guðni Már Henningsson, einn okkar ástsælasti útvarpsmaður til margra ára, vinnur nú að því að skrifa æviminningar sínar sem hann vonast til að komi út í haust. Guðni Már birti lítið brot úr bókinni á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann rifjar upp skemmtilega sögu.
Guðni var umsjónarmaður Næturvaktarinnar á Rás 2 í mörg ár og hlustun á þáttinn á laugardagskvöldum fastur liður hjá mörgum Íslendingum.
Guðni Már hætti með þáttinn árið 2018 en hann er nú búsettur á Kanaríeyjum þar sem hann hefur það býsna gott. Í færslu sinni rifjar hann upp síðustu Næturvaktina en kvöldið byrjaði ekki beint vel.
Sjá einnig: Guðni Már um lífið á Tenerife: „Hér vil ég vera það sem eftir er“
„Þegar ég var að fara á síðustu næturvaktina frá Langaholti ók ég örlítið hraðar en lög leyfðu. Stór og mikil bifreið með blá blikkandi ljós ók í veg fyrir mig. Ekki boðaði það gott. Kraftalegur maður í löggubúningi steig út úr bílnum. Hann var greinilega of sterkur fyrir mig! Hann bað mig vinsamlegast að koma með sér í fínni bílinn,“ segir Guðni.
Þar var honum tilkynnt að hann hefði ekið á 104 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Hann viðurkennir að hafa verið heppinn.
„Hefðu þeir tekið mig örlítið fyrr hefði ég lent í vondum málum. Ég fór einhver strik yfir 130. Ég slapp vel. Var reyndar rukkaður um fjörutíu og fimm þúsund kall. Þegar ég var búinn að borga sagði annar þeirra að skilnaði, viltu senda fyrir okkur kveðju á löggustöðina í Stykkishólmi og spila Creedence Clearwater Revival?“
Guðni segir að þetta hafi honum þótt fyndið og fóru kveðjan og lagið í loftið skömmu síðar.
„Þess má geta að nokkrum mánuðum síðar hitti ég mann á Nostalgíu sem starfar sem lögga í Stykkishólmi. Hann sagði að kveðjan hefði vakið mikla lukku en þeir hefðu átt að taka mig miklu oftar til að fá góð lög á Næturvaktinni! Síðustu næturvaktina sem ég stóð á Rás 2 lengdi ég um klukkutíma því kveðjurnar voru margar. Það var það minnsta sem ég gat gert fyrir bestu hlustendur í heimi.“