Sjö at­riði sem Elín segir að eld­gosafarar megi alls ekki gleyma

Elín Björk Jónas­dóttir, fjall­göngu­garpur og sér­fræðingur á Veður­stofunni sendi Fjalla­stelpum texta þar sem hún telur upp sex at­riði sem þeir sem ætla sér að berja eld­gosið í Geldinga­dal augum þurfa að huga að.

Eins og fjallað hefur verið um í dag hafa þúsundir streymt í dalinn í dag til að berja eld­gosið augum. Rögn­valdur Ólafs­son, að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn hefur þó bent á að spáin muni versna í nótt og á morgun og hefur biðla til fólks um að sitja kjurrt.

Elín segir það skiljan­legt að það sé mikill á­hugi á að sjá gosið. Enda finnist öllum þetta spennandi. Hún telur upp sex at­riði sem allir verða að hafa í huga:

  1. Það eru ekki komnar upp neinar stikaðar leiðir, gangan er löng og erfið, sama hvaðan er komið að.
  2. Gasmengun ná­lægt gos­stöðvunum er mjög mikil ef fólk lendir í mekkinum. Hann er EKKI sýni­legur nema rétt yfir hrauninu, það þýðir ekki að þar sé ekki gas. Mælingar vísinda­manna voru 5-65 PPM við hraunið á að­fara­nótt laugar­dags, það eru ban­væn gildi.
  3. Gangið undan vindi á leið að hrauninu, ef vindur breytist VERÐUR AÐ BREYTA UM LEIÐ! -helst vera með gas­mæla.
  4. Ekki fara án GPS, ferða­plans og al­vöru út­búnaðar, síma­sam­band er stopult, lítið um góð landa­merki og auð­velt að villast.
  5. Nýjar spurn­gur geta mögu­ega opnast hvar sem er á þessum gangi sem myndaðist. (reynsla frá Fimm­vörðu­hálsi) Hann er t.d. undir Nátt­haga og því ekki skyn­sam­legt að ganga þar um.
  6. Fylgið fyrir­mælum þeirra við­bragðs­aðila sem eru á staðnum.
  7. Í dag er spáð suð­vestan 8-15 m/s og skúrum eða jafn­vel slyddu­éljum. Í nótt breytist vindur hratt til vesturst, og þar með breytist gas­dreifingin líka. Skoðið spárnar áður en þið leggið í hann.

Þá segir Elín að myndir af fólki við hraun­jaðarinn séu ekki sniðugar. „Heldur er þetta stór­hættu­legt. Ekki fara niður í Geldinga­dalinn, njótið þess frekar að hafa yfir­sýn af fellunum í kring, það er lang öruggast.“

Elín Björk Jónasdóttir, fjallastelpa og sérfræðingur á Veðurstofunni, sendi okkur þennan texta. Sjálfar förum við ekki...

Posted by Fjallastelpur on Sunday, 21 March 2021