Setur spurningamerki við að sex þurfi til að skrifa brandara Gísla Marteins

Týr, nafnlaus höfundur Viðskiptablaðsins sem er á ábyrgð Trausta Hafliðasonar ritstjóra, setur stórt spurningamerki við að það þurfi „sex manna teymi ríkisstarfsmanna“ til að skrifa brandara Gísla Marteins Baldurssonar í vikulegum skemmtiþætti.

„Týr tók eftir því að Gísli Marteinn Baldursson, skemmtikraftur á Ríkissjónvarpinu, sá nýlega ástæðu til að hrósa sérstaklega handritshöfundum að bröndurum sínum í vikulegum spjallþætti sínum. Eins og Týr hefur áður fjallað um er hluti þáttarins, sem sýndur er á einum besta útsendingartíma í línulegri dagskrá, iðulega nýttur til að skjóta á þá sem skilgreina sig til hægri í stjórnmálum,“ segir í pistlinum.

„Bergsteinn Sigurðsson, annar starfsmaður RÚV, er aðalhöfundur og nýtur aðstoðar Gísla Marteins og fjögurra annarra starfsmanna RÚV. Allir vita að það þarf auðvitað sex manna teymi ríkisstarfsmanna til að skrifa þriggja mínútna brandaraseríu í hverri viku, sem yfirleitt vekur mikla lukku… á twitter.“

Týr vill helst leggja af útvarpsgjaldið og gera það frjálst:

„Tekjur RÚV af þessari skattheimtu eru um 4,5 milljarðará ári og munu hækka enn frekar á næsta ári þegar Bjarni Benediktsson verður búinn að hækka útvarpsgjaldið enn frekar. Þetta eru stjarnfræðilegar upphæðir þegar kemur að rekstri íslenskra fjölmiðla. Brandarateymi Vikunnar er ekki ókeypis.“